Hægt er að setja inn ýmsar "spurningar" sem birtast á starfsmannavef þar sem hægt er að fá samþykki starfsmanns við þessum atriðum.
Stillitafla fyrir spurningarnar er aðgengileg í kerfisvalmynd undir Aðgerðir > Stillingar > Samþykki.
Það er hægt að skilgreina eftirfarandi atriði:
- Þann texta sem á að birtast á starfsmannavefnum
- Tækniheiti þess spjalds sem á að uppfærast við svarið, ef við á.
- Tækniheiti og gildi þess svæðis sem á að uppfærast við svarið, ef við á.
- Tímabilið sem viðkomandi spurning á að birtast á starfsmannavef, ef við á
- Netföng þeirra aðila sem eiga að fá tölvupóst þegar starfsmaður staðfestir svar á starfsmannavef, ef tölvupóstur á að sendast við svar
- Sniðmát fyrir þann texta sem á að sendast í tölvupósti, ef tölvupóstur á að sendast við svar
- Linkur á vefsíðu sem inniheldur frekari upplýsingar, t.d. linkur á síðu í starfsmannahandbók
- Viðhengjategund ef starfsmaður á að geta vistað viðhengi með svarinu