Í skrefi 1 eru fylltar út grunnupplýsingar um auglýsinguna:
Nafn; heiti auglýsingarinnar
Lýsing; inniheldur upplýsingar um starfið og hæfniskröfur
Tímabil; upphafs- og lokadagur auglýsingar
Fjöldi lausra staða; ef ráða á fleiri en einn
Hægt að velja hvort auglýsingin eigi að birtast á ytri eða innri vef, eða bæði
Tengiliður; netfang þess aðila sem hefur umsjón með auglýsingunni
Aðgangur; hægt að velja inn þá aðila sem eiga að hafa aðgang að auglýsingunni (ef fleiri en umsjónaraðili)
Samstarfsaðili; t.d. ráðningarþjónusta (ef við á)
Fyrirtæki; ef um er að ræða mörg fyrirtæki innan samstæðu
Flokkun auglýsingar; möguleiki að að hafa mismunandi flokka á auglýsingum (ef við á)
Staðfestingarbréf; hægt að velja inn það bréf sem sendist á umsækjanda um leið og hann hefur sent inn umsókn
Í skrefi 2 eru spurningar valdar inn sem á að spyrja um í viðkomandi auglýsingu. Hægt er að stofna spurningar frá grunni eða byggja þær á spurninga sniðmátum. Hægt er að velja eitt eða fleiri sniðmát inn í auglýsingu og spurningahópum og viðbótarspurningum er bætt inn eftir þörfum.
Fyrst um sinn verður haldið utan um spurningar og spurningasniðmát í Kjarna client. Sjá nánar hér.
Í skrefi 3 kemur yfirlit yfir auglýsinguna og svo er smellt á Stofna auglýsingu og þá birtist auglýsingin í yfirliti yfir auglýsingar og einnig birtist hún strax á umsóknarvef þar sem umsækjendur geta sótt um.