Þegar starfsmaður lætur af störfum hjá fyrirtæki er að ýmsu að hyggja í kerfinu bæði að því sem snýr að uppgjöri launa og öðru.
Þegar starfsmaður lætur af störfum þarf að setja enda dagsetningu á færslur í eftirfarandi spjöldum.
Tenging innan fyrirtækis
Best er að afrita gildandi færslu og setja inn ný gildi í afrituðu færsluna. Breyta þarf ráðningarmerkingu, tegund ráðningar heldur sér yfirleitt og síðan þarf að gefa ástæður starfsloka. Það er einungis sett inn fyrir skýrslugjöf.
Í gildir til á að skrá daginn eftir síðasta starfsdag viðkomandi starfsmanns. Þegar ýtt er á vista og loka breytist lokadagsetning á færslunni á undan sjálfkrafa í síðasta starfsdag.
Endadagsetningin á færslunni sem merkt er Hættur á að vera 31.12.9999.
Þegar ýtt er á Vista og loka kemur kerfið upp með eftirfarandi villumeldingu ef að starfsmaður er með laun í lokuðum útborgunum.
Grunnlaun
Setja þarf enda dagsetningu á gildandi færslu í Grunnlaunaspjaldinu. Enda dagsetningin á að vera daginn eftir síðustu útborgun starfsmanns.
General
Content
Integrations