Markhópar
Markhópavirkni hefur verið útfærð þannig að nú er hægt að stofna markhóp sem inniheldur fyrirtæki, skipulagseiningar, stöður og/eða starfsmenn. Markhópa, einn eða fleiri, er svo hægt að tengja á námskeið. Nánari upplýsingar er að finna hér.
Ekki er búið að útfæra á starfsmannavef birtingu á námskeiðum út frá markhópum en þær viðbætur eru í vinnslu.
Skráning þátttakanda - þátttökustaða
Þegar þátttakandi er skráður á námskeið með því að stofna nýja færslu fyrir hann með + hnappinum þá færi þátttakandinn nú sjálfkrafa þátttökustöðuna skráður, eins og gerist þegar þátttakandi er skráður með því að slá nafn hans inn í leitargluggann.