Í hliðarvali Kjarna > Laun > Aðgerðir >Launamiðar
Þegar smellt er á textann Launamiðar opnast flæðiriti sem veitir aðgang að öllum þeim stillingum og aðgerðum sem tengjast uppsetningu launamiða og sendingu þeirra til ríkisskattstjóra og launamanna.
Eftirfarandi er útskýring á hverri einingu í flæðiritinu.
Launamiðar
Þegar smellt er á þennan kassa opnast yfirlit yfir alla reiti launamiðans eins og þeir eru framsett á vef ríkisskattstjóra.
Launaliðir
Hægt að velja Launaliðir og Launaliðir í launamiðum
Launaliðir - Opnar lista yfir alla launaliði í sprettiglugga. Hægt er að breyta stillingum beint úr þeim glugga.
Launaliðir í launamiðum - Opnar lista yfir launamiðareiti þar sem sjá má hvaða launaliðir eru skráðir í reiti.
Undirbúa
Þetta er aðgerð sem þarf að keyra til þess að útbúa launamiðana sjálfa. Ef gerðar eru breytingar á gögnum þá þarf að keyra þessa aðgerð aftur. Aðgerðin er keyrð með því að smella á kassann Undirbúa.
Þegar smellt er á Undirbúa opnast valskjár þar sem hægt er að takmarka valið t.d. við fyrirtæki, starfsmann, launalið eða "Dálkar" Launamiðareitir á launamiða. Þegar aðgerð er lokið kemur upplýsingagluggi í hægra neðra hornið þar sem fram kemur hvort vinnsla tókst eða ekki og hve margir launamiðar voru útbúnir ef vinnsla tókst.
Ef hakað er við Sundurgreina á launalið - þá er hægt að draga launaliðina inn í greiningarskýrsluna í "Yfirfara", sjá hér á eftir.
Yfirfara
Þrjár leiðir eru í boði til að yfirfara launamiðana.
Greina
Greina gefur samtölur per launamiðareit á launamiða.
Sýnir númer reits, heiti þess og heildarupphæð í hverjum reit. Hægt er að draga inn til viðbótar Ártal, Fyrirtæki númer og nafn, Nafn starfsmanns, Launalið (ef hakað var við Sundurgreina á launalið) og númer og nafn lífeyrissjóða.
Í svæðinu „Velja svið“ eru einnig Kostnaðarstöð og Skipulagseiningar en þau svæði skila ekki upplýsingum í listann, en eru notuð af Kjarna
Þennan lista er gott að bera saman við fyrirtækjalista ársins. Ef þessir listar stemma ekki, væri gott að byrja á að skoða eftirfarandi þætti:
- Það vanti merkingu á launalið í flipanum „Greina“ eða að rangur reitur sé skráður á launalið.
- Endurvinna áramótstöðu
- Mögulega hefur launaliðum verið breytt á árinu ! Í þeim tilvikum er best að snúa sér til ráðgjafa Origo og fá aðstoð.
Listi
Listinn sýnir starfsmannalista og skiptingu launa í reit hvers starfsmanns.
Hægt að draga inn sömu svæði og í Greina, nema launaliði, þeir skila engu hér.
Skýrsla
Skýrsla eru launamiðarnir sjálfir.
Hægt að velja starfsmenn, eða prenta alla á skjá. Hægt að haka við að sjá aðeins samtalsseðil. Opnast sem sprettigluggi, ekki flipi.
Senda
Tveir sendingarmöguleikar eru í boði. Annars vegar til Ríkisskattstjóra, sent með vefþjónustu. Hins vegar er boðið upp á XML skrá sem lesin er inn í viðskiptabanka á netinu til birtingar í heimabanka starfsmanna.
Til RSK
Valskjár opnast sem bíður upp á að val sé þrengt en þar er einnig boðið upp á prufusendingu.
Undir "Tegund" er hægt að velja um tvær tegundir - Launamiða og sveitarfélagamiða.
Niðurstöðuglugginn bíður upp á skoðun á launamiðum með pdf, sjá bláann undirstrikaðan texta.
Ríkisskattstjóri er með öfluga villuleit við móttöku á launamiðum.
Athugasemdir eru oftast vegna viðmiða á upphæðum einstakra reita. Athugasemdir stoppa ekki móttöku launamiða.
Hafnað eru villur sem valda því að RSK tekur ekki á móti launamiðum. Þá þarf að leiðrétta þessar villur, endurvinna áramótastöðu, undirbúa launamiða aftur og senda aftur.
Helstu ástæður höfnunar eru:
- Kennitala í stofngögnum lífeyrissjóða stemmir ekki við númer lífeyrissjóðs.
RSK sendir upplýsingar um hvaða starfsmaður á í hlut.
Skoðið stofngögn Lífeyrissjóðaskoðuð, ath. hvort kennitala sé sú sama og gefin er upp á https://www.rsk.is/atvinnurekstur/framtal-og-alagning/lifeyrissjodir/
Athuga líka flipann Skilagreinar, þar neðst er reiturinn Launamiðar, ath.hvort rétt númer er skráð í þennan reit.
Eftir lagfæringu þarf að endurvinna áramóstastöðu allra starfsmanna og undirbúa launamiða á ný, áður en sent er aftur til RSK - Ólöglegt gildi í skrá.
Oftast er um að ræða mínus í reit 3 Lífeyrissjóður, almennur eða í reit 63 Lífeyrissjóður séreign.
Byrjað er á að skoða listann Greina.- Síið á reiti 3 og 63 þannig að ekkert annað sé að trufla einbeitinguna.
- Dragið inn nafn starfsmanns og staðsetjið fremst í lista, fyrir framan Dálkur nr..
- Dragið inn númer lífeyrissjóðs og staðsetjið fyrir aftan nafn starfsmanns.
- Hægrismellið á Gildi Total og veljið "Sort Starfsmaður by this column"
- Mínusgildin koma í fyrstu línur listans.
Mínusgildi í lífeyrissjóðareit stafar iðulega af því að starfsmaður skiptir um lífeyrissjóð og afturvirk leiðrétting nær aftur á síðasta ár. Þannig kemur mínus gildi á eldri sjóðinn.
Ef þetta gerist, hafið þá samband við ráðgjafa Origo (service@origo.is) og óskið eftir aðstoð við að koma launamiðum í gegn um villuleit hjá RSK.
Í banka
Launamiðar fyrir heimabanka eru skrifaðir niður á drif að vali notandans