Launamiðar

 

 

 

 

 

 

image-20240403-140203.png

 

Í hliðarvali Kjarna  > Laun > Aðgerðir >Launamiðar

 

Þegar smellt er á textann “Launamiðar” opnast flæðirit sem veitir aðgang að öllum þeim stillingum og aðgerðum sem tengjast uppsetningu launamiða og sendingu þeirra til ríkisskattstjóra og launamanna.

Eftirfarandi er útskýring á hverri einingu í flæðiritinu.

 

image-20240403-140357.png

 

Launamiðar

Þegar smellt er á þennan kassa opnast yfirlit yfir alla reiti  launamiðans eins og þeir eru framsettir á vef ríkisskattstjóra.

 

 

Launaliðir

Hægt að velja “Launaliðir” og “Launaliðir í launamiðum”

 

 

 

Launaliðir - Opnar lista yfir alla launaliði í sprettiglugga. Hægt er að breyta stillingum beint úr þeim glugga.

 

 

Launaliðir í launamiðum - Opnar lista yfir launamiðareiti þar sem sjá má hvaða launaliðir eru skráðir í reiti.

Gott að bera saman skráningu í launamiðareiti til að tryggja að allir launaliðir sem eru á fyrirtækjalista og eiga að koma á launamiða séu skráðir á launamiðareit

 

Undirbúa

Þetta er aðgerð sem þarf að keyra til þess að útbúa launamiðana sjálfa. Ef gerðar eru breytingar á gögnum þá þarf að keyra þessa aðgerð aftur. Aðgerðin er keyrð með því að smella á kassann Undirbúa.

Þegar smellt er á Undirbúa opnast valskjár þar sem hægt er að takmarka valið t.d. við fyrirtæki, starfsmann, launalið eða "Dálkar" Launamiðareitir á launamiða. Þegar aðgerð er lokið kemur upplýsingagluggi í hægra neðra hornið þar sem fram kemur hvort vinnsla tókst eða ekki og hve margir launamiðar voru útbúnir ef vinnsla tókst.

 

Ef hakað er við Sundurgreina á launalið - þá er hægt að draga launaliðina inn í greiningarskýrsluna í "Yfirfara", sjá hér á eftir.

Ef hakað er við Eyða öllu fyrir - þá eyðast fyrri launamiðar sem áður var búið að mynda.

 

 

 

 

Yfirfara

Þrjár leiðir eru í boði til að yfirfara launamiðana; Greina, Listi og Skýrsla

 

Greina

Greina gefur samtölur per launamiðareit á launamiða.

Sýnir númer reits, heiti þess og heildarupphæð í hverjum reit. Hægt er að draga inn til viðbótar Ártal, Fyrirtæki númer og nafn, Nafn starfsmanns, Launalið (ef hakað var við Sundurgreina á launalið) og númer og nafn lífeyrissjóða.

Í svæðinu „Velja svið“ eru einnig Kostnaðarstöð og Skipulagseiningar en þau svæði skila ekki upplýsingum í listann, en eru notuð af Kjarna.

 

Þennan lista er gott að bera saman við fyrirtækjalista ársins. Ef þessir listar stemma ekki, væri gott að byrja á að skoða eftirfarandi þætti:

  • Vantar merkingu á launalið í flipanum „Greina“ eða er rangur reitur skráður á launaliðinn.

  • Endurvinna áramótastöðu.

  • Mögulega hefur launaliðum verið breytt á árinu! Í þeim tilvikum er best að snúa sér til ráðgjafa Origo og fá aðstoð.

 

 

Listi

Listinn sýnir starfsmannalista og skiptingu launa í reit hvers starfsmanns.

Hægt að draga inn sömu svæði og í Greina, nema launaliði, þeir skila engu hér.

 

 

Skýrsla

Skýrslan eru launamiðarnir sjálfir.

Hægt að velja starfsmenn, eða prenta alla á skjá. Hægt að haka við að sjá aðeins samtalsseðil. Opnast sem sprettigluggi, ekki flipi.

 

 

Senda

Tveir sendingarmöguleikar eru í boði. Annarsvegar til ríkisskattstjóra, sent með vefþjónustu. Hinsvegar er boðið upp á XML skrá sem lesin er inn í viðskiptabanka á netinu til birtingar í heimabanka starfsmanna.

 

 

Til RSK

Valskjár opnast sem bíður upp á að val sé þrengt en þar er einnig boðið upp á prufusendingu.

Undir "Tegund" er hægt að velja um tvær tegundir - Launamiða og sveitarfélagamiða.

 

 

 

Niðurstöðuglugginn bíður upp á skoðun á launamiðum með pdf, sjá bláann undirstrikaðan texta.

Ríkisskattstjóri er með öfluga villuleit við móttöku á launamiðum. 

Athugasemdir eru oftast vegna viðmiða á upphæðum einstakra reita. Athugasemdir stoppa ekki móttöku launamiða.

Hafnað eru villur sem valda því að RSK tekur ekki á móti launamiðum. Þá þarf að leiðrétta þessar villur, endurvinna áramótastöðu, undirbúa launamiða aftur og senda aftur.

Helstu ástæður höfnunar eru:

Mínusgildi í lífeyrissjóðareit stafar iðulega af því að starfsmaður skiptir um lífeyrissjóð og afturvirk leiðrétting nær aftur á síðasta ár. Þannig kemur mínus gildi á eldri sjóðinn.
Ef þetta gerist, hafið þá samband við ráðgjafa Origo (service@origo.is) og óskið eftir aðstoð við að koma launamiðum í gegnum villuleit hjá RSK

 

 

Í banka

Launamiðar fyrir heimabanka eru skrifaðir niður á drif að vali notandans

Á starfsmannavef

Hægt er að birta launamiða á starfsmannavef.

Kveikja þarf sérstaklega á þeirri virkni í vefgildi og bæta inn línu í hlutverkið fyrir starfsmannavefinn.

Hægt er að senda beiðni á service@origo.is til að óska eftir að virkja þessa birtingu.