Endurreikna orlofstíma
Endurreikna orlofstíma 1.skref |
|
|---|---|
| Í launaskráningu starfsmanns er hægt að endurreikna orlofstíma.
|
| Upp kemur valskjár með númer útborgunar og nafni starfsmanns.
Athugið: Ef breyting á orlofsprósentu nær aftur til fyrra árs, þarf að bæta við eldra ári í valskjáinn.
Kerfið mun uppfæra orlofstímana miðað við nýjustu upplýsingar úr orlofsspjaldi. Hafa þarf í huga að orlofsárið er frá 1. maí til 30.apríl. Ef verið er að breyta orlofstímum starfsmanns t.d. í október og breytingin er frá 1. janúar þá er búið að keyra orlofsáramót innan þess tímabils. Þá eru orlofstímar endurreiknaðir frá 1. maí en til að leiðrétta tíma fyrir janúar til apríl (Sem tilheyra þá eldra orlofsári ) á að skrá það sem uppá vantar á launalið 9289. Þá bætast tímarnir við orlofsstöðuna þegar búið er að endurvinna áramótastöðuna.
|
Endurvinna áramótastöðu 2.skref |
|
| Eftir að orlofstímar hafa verið endurreiknaðir, þá þarf líka að endurreikna áramótastöðu starfsmanns. Fyrr koma réttir tímar ekki fram í orlofsskýrslum og skuldbindingu. Athugið að í valskjá gæti þurft að bæta við síðasta ári, ef breytingin náði aftur á síðasta ár. Hér eru nánari upplýsingar um hvernig áramótastaðan er endurunnin.
|
Leiðrétting á orlofsfé |
|
| Ef verið er að leiðrétta orlof sem hefur verið greitt út, þarf fyrst að laga það í excel og skrá síðan inn í launaskráningu. Það er gert svona:
Fyrir þá sem fá orlofið greitt inn á orlofsreikning bætist við:
|
Handskrá orlofstíma |
|
| Til að leiðrétta stöðu á eldra orlofi, skal skrá þá tíma sem vantar á launalið 9289 Til að bæta við ávinnslu orlofstíma fyrir næsta orlofsár skal skrá á launalið 9280 Við endurvinnslu áramótastöðunnar uppfærist orlofsstaða starfsmannsins í samræmi við þessar skráningar. |