Áramótastaða launamanns
Endurvinna áramótastöðu |
|
|---|---|
| Hægt er að skoða yfirlit yfir alla launaliði sem starfsmaður hefur fengið greidda á árinu með því að smella á hnappinn „Áramótastaða“ í skráningarmynd launa.
|
| Launaliðir koma sundurliðaðir niður á safnflokka, söfnunarár og stofnanir.
|
| Áramótastaðan er endurunnin með því að smella á hnappinn „Endurvinna“ í tækjaslánni.
Þessa aðgerð má framkvæma hvenær sem er – eina sem gerist er að upphæðir úr lokuðum útborgunum eru reiknaðar saman á ný.
|
| Ef endurvinna á áramótastöðu fyrir ákveðnar útborganir er hægt að telja þær upp með kommu á milli. Athugið að nota útborgunarnúmer, ekki útborgunarvísir.
|
| Ef inntak of stórt; Hægt er að endursækja áramótastöðu út frá bókunarmánuði innan þess árs sem valið er. Til að virkja þetta val þarf að tvísmella á textann „Ef inntak of stórt“. Við það opnast möguleiki á að skrá inn mánuði, þar sem hver mánuður er táknaður með tölunni 1 til 12. Hægt er að skrá inn marga mánuði í einu með því að aðskilja þá með kommu, t.d. „1,2,3,4“ ef endursækja á fyrstu fjóra mánuði ársins. Þegar mánuðir eru skráðir dettur hakið fyrir „Eyða færslum fyrir“ sjálfkrafa út. |
| Ef sækja á áramótastöðu fyrir heilt ár út frá mánuðum þá er byrjað á að eyða allri áramótastöðu fyrir viðkomandi ár með því að skrá inn „-1“ í útborgun og hafa hakað í „Eyða færslum fyrir“.
Síðan er farið í að sækja áramótastöðu fyrir valda mánuð einn eða fleiri í einu. Passað upp á að ekki sé hakað í „Eyða færslum fyrir“ ( á að detta út sjálfkrafa) og að sami mánuður sé ekki sóttur oftar en einu sinni.
|
| Ef það á að endurvinna áramótastöðu í opinni útborgun, þarf að taka hakið úr „Aðeins lokaðar útborganir“. Þannig er hægt að vinna með gögn í útborgun sem enn er opin, til dæmis þegar verið er að leiðrétta orlofsstöðu eða aðra launatengda þætti áður en útborgun er lokað. |
Sundurgreina áramótastöðu |
|
| Hægt er að sundurgreina færslur í áramótastöðu til að rekja í hvaða útborgunum þær koma fyrir. Til þess þarf að velja viðkomandi línu og smella á táknið „Sundurgreina“ í tækjaslánni. Þetta veitir nánari innsýn í uppruna færslunnar og getur verið gagnlegt við greiningu eða leiðréttingar.
|
| Valskjá kemur upp með upplýsingum um ár, útborganir, launamannanúmer og launalið. Hér er farið í “Sækja”. |
| Hægt er að bæta við fleiri svæðum í yfirlitið með því að fara í „Velja dálka“. Hér hefur verið bætt við dálknum „Útborgun vísir“ til að auðvelda greiningu. |