Föst laun - sækja og eyða

 

 

 

 

image-20250127-123623.png

 

Hægt er að sækja og eyða föstum launaliðum á nokkrum stöðum í kerfinu.

Mælt er með að fastir liðir séu ekki sóttir fyrr en búið er að gera allar þekktar breytingar á stofngögnum starfsmanna. Það er gert til að losna við auka handavinnu sem felst í því að breyta sóttum færslum í launaskráningu út frá nýjum forsendum.


Fastir liðir eru að öllu jöfnu sóttir fyrir alla starfsmenn í einu, en einnig er hægt að velja stakan starfsmann. 

 

 

image-20250127-123834.png

 

Aðgerðarsaga
Aðgerðin að sækja fasta liði er skráð í aðgerðarsögu. Aðgerðarsaga er aðgengileg í hliðarvalmynd á vinstri hlið undir Kjarni>Laun. 

Sækja fasta launaliði við stofnun útborgunar

 

 

image-20250127-125248.png

 

Hægt er að sækja fasta launaliði þegar útborgun er stofnuð. Það er gert með því að setja hak í Fastir launaliðir neðst í glugganum sem opnast þegar útborgun er stofnuð. 

Sækja/eyða föstum launaliðum í launahring

 

image-20250127-123922.png

 

Hægt er að sækja fasta launaliði hvenær sem er í opinni útborgun í gegnum launahringinn.

Það er gert með því að smella á „Föst laun" en þá opnast meðfylgjandi gluggi sem nauðsynlegt er að yfirfara áður en fastir launaliðir eru sóttir. 

 

image-20250311-144404.png

Í glugganum sem opnast eru efst upplýsingar um útborgunar númer valinnar útborgunar.

Þar fyrir neðan er síðan hægt að velja inn ákveðinn launamann með því að ýta á punktalínuna. 

 

image-20250311-144538.png

 

Einnig er hægt að sækja fasta liði fyrir:

  • Gr.form launamanns

    • 1 fyrir Eftirágreidda

    • 2 fyrir fyrirframgreidda

  • Tímabil launaliðar

    • 1 fyrir Eftirágreidda

    • 2 fyrir fyrirframgreidda

  • Samninga - með því að ýta á punktana þrjá kemur listi yfir launatöflur í kerfinu

  • Launaliði - með því að ýta á punktana þrjá kemur listi yfir launaliði í kerfinu

  • Launafulltrúa- með því að ýta á punktana þrjá kemur listi yfir launafulltrúa í kerfinu

 

 

 

image-20250311-144623.png

Neðst í aðgerðasvæðinu er valin sú aðgerð sem á að keyrast þegar launaliðir eru sóttir. Haka þarf við ‘Sækja fasta launaliði’ til að þeir verði sóttir. 

 

Ef búið er að sækja fasta launaliði áður þarf að setja hak í Eyða föstum launum fyrir. Í flestum tilvikum er gott að hafa alltaf hak í þessum reit því annars koma allir fastir liðir tvöfaldir inn. Ef það gleymist að setja hak í þennan reit og fastir launaliðir birtast tvisvar hjá öllum starfsmönnum er hægt að keyra aftur þessa aðgerð, setja hak í Eyða föstum launum fyrir og þá eyðast allar fyrri færslur út. 

 

Ef að það er sett hak í ‘Reikna laun’ þá reiknar kerfið laun út frá þeim föstu liðum sem voru sóttir og þeim launaliðum sem búið er að skrá í útborgun. Athugið að það er alltaf hægt að reikna laun aftur síðar. 



Í valskjánum er hakið tekið af „Sækja fasta launaliði" en hakið látið halda sér í „Eyða föstum launaum fyrir" og „Reikna laun" Því næst er smellt á hnappinn Sækja og aðgerðin eyðir öllum föstum liðum í launaskráningu.

Sækja fasta liði fyrir einstaka launamenn

 

image-20250127-125505.png

 

Einnig er hægt að sækja fasta launaliði á einstaka launamenn í skráningarmynd launa. 



Related content