Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 13 Next »

Í hliðarvali Kjarna  > Laun > Aðgerðir >Launamiðar

Þegar smellt er á textann Launamiðar opnast flæðiriti sem veitir aðgang að öllum þeim stillingum og aðgerðum sem tengjast uppsetningu launamiða og sendingu þeirra til ríkisskattstjóra og launamanna.

Eftirfarandi er útskýring á hverri einingu í flæðiritinu.

Launamiðar

Þegar smellt er á þennan kassa opnast yfirlit yfir alla reiti  launamiðans eins og þeir eru framsett á vef ríkisskattstjóra.

Launaliðir

Hægt að velja Launaliðir og Launaliðir í launamiðum

Launaliðir - Opnar lista yfir alla launaliði í sprettiglugga. Hægt er að breyta stillingum beint úr þeim glugga.

Launaliðir í launamiðum - Opnar lista yfir launamiðareiti þar sem sjá má hvaða launaliðir eru skráðir í reiti.

Gott að bera saman skráningu í launamiðareiti til að tryggja að allir launaliðir sem eru á fyrirtækjalista og eiga að koma á launamiða séu skráðir á launamiðareit

Undirbúa

Þetta er aðgerð sem þarf að keyra til þess að útbúa launamiðana sjálfa. Ef gerðar eru breytingar á gögnum þá þarf að keyra þessa aðgerð aftur. Aðgerðin er keyrð með því að smella á kassann Undirbúa.

Þegar smellt er á Undirbúa opnast valskjár þar sem hægt er að takmarka valið t.d. við fyrirtæki, starfsmann, launalið eða "Dálkar" Launamiðareitir á launamiða. Þegar aðgerð er lokið kemur upplýsingagluggi í hægra neðra hornið þar sem fram kemur hvort vinnsla tókst eða ekki og hve margir launamiðar voru útbúnir ef vinnsla tókst.


Ef hakað er við Sundurgreina á launalið - þá er hægt að draga launaliðina inn í greiningarskýrsluna í "Yfirfara", sjá hér á eftir.


  

Yfirfara

Þrjár leiðir eru í boði til að yfirfara launamiðana.

Greina

Greina gefur samtölur per launamiðareit á launamiða.

Sýnir númer reits, heiti þess og heildarupphæð í hverjum reit. Hægt er að draga inn til viðbótar Ártal, Fyrirtæki númer og nafn, Nafn starfsmanns, Launalið (ef hakað var við Sundurgreina á launalið) og númer og nafn lífeyrissjóða.

Í svæðinu „Velja svið“ eru einnig Kostnaðarstöð og Skipulagseiningar en þau svæði skila ekki upplýsingum í listann, en eru notuð af Kjarna

Þennan lista er gott að bera saman við fyrirtækjalista ársins. Ef þessir listar stemma ekki, væri gott að byrja á að skoða eftirfarandi þætti:

  • Það vanti merkingu á launalið í flipanum „Greina“ eða að rangur reitur sé skráður á launalið.
  • Endurvinna áramótstöðu
  • Mögulega hefur launaliðum verið breytt á árinu ! Í þeim tilvikum er best að snúa sér til ráðgjafa Origo og fá aðstoð.

Listi

Listinn sýnir starfsmannalista og skiptingu launa í reit hvers starfsmanns.

Hægt að draga inn sömu svæði og í Greina, nema launaliði, þeir skila engu hér.

Skýrsla

Skýrsla eru launamiðarnir sjálfir.

Hægt að velja starfsmenn, eða prenta alla á skjá. Hægt að haka við að sjá aðeins samtalsseðil. Opnast sem sprettigluggi, ekki flipi.

Senda

Tveir sendingarmöguleikar eru í boði. Annars vegar til Ríkisskattstjóra, sent með vefþjónustu. Hins vegar er boðið upp á XML skrá sem lesin er inn í viðskiptabanka á netinu til birtingar í heimabanka starfsmanna.

Til RSK

Valskjár opnast sem bíður upp á að val sé þrengt en þar er einnig boðið upp á prufusendingu.

Undir "Tegund" er hægt að velja um tvær tegundir - Launamiða og sveitarfélagamiða.

Niðurstöðuglugginn bíður upp á skoðun á launamiðum með pdf, sjá bláann undirstrikaðan texta.

  

Ríkisskattstjóri er með öfluga villuleit við móttöku á launamiðum. 

Athugasemdir eru oftast vegna viðmiða á upphæðum einstakra reita. Athugasemdir stoppa ekki móttöku launamiða.

Hafnað eru villur sem valda því að RSK tekur ekki á móti launamiðum. Þá þarf að leiðrétta þessar villur, endurvinna áramótastöðu, undirbúa launamiða aftur og senda aftur.

Helstu ástæður höfnunar eru:

  • Kennitala í stofngögnum lífeyrissjóða stemmir ekki við númer lífeyrissjóðs.
    RSK sendir upplýsingar um hvaða starfsmaður á í hlut.
    Skoðið stofngögn Lífeyrissjóðaskoðuð, ath. hvort kennitala sé sú sama og gefin er upp á https://www.rsk.is/atvinnurekstur/framtal-og-alagning/lifeyrissjodir/ 
    Athuga líka flipann Skilagreinar, þar neðst er reiturinn Launamiðar, ath.hvort rétt númer er skráð í þennan reit.
    Eftir lagfæringu þarf að endurvinna áramóstastöðu allra starfsmanna og undirbúa launamiða á ný, áður en sent er aftur til RSK
  • Ólöglegt gildi í skrá.
    Oftast er um að ræða mínus í reit 3 Lífeyrissjóður, almennur eða í reit 63 Lífeyrissjóður séreign.
    Byrjað er á að skoða listann Greina. 
    • Síið á reiti 3 og 63 þannig að ekkert annað sé að trufla einbeitinguna.
    • Dragið inn nafn starfsmanns og staðsetjið fremst í lista, fyrir framan Dálkur nr..
    • Dragið inn númer lífeyrissjóðs og staðsetjið fyrir aftan nafn starfsmanns.
    • Hægrismellið á Gildi Total og veljið "Sort Starfsmaður by this column"
    • Mínusgildin koma í fyrstu línur listans.

Mínusgildi í lífeyrissjóðareit stafar iðulega af því að starfsmaður skiptir um lífeyrissjóð og afturvirk leiðrétting nær aftur á síðasta ár. Þannig kemur mínus gildi á eldri sjóðinn.
Ef þetta gerist, hafið þá samband við ráðgjafa Origo (service@origo.is) og óskið eftir aðstoð við að koma launamiðum í gegn um villuleit hjá RSK.

Í banka

Launamiðar fyrir heimabanka eru skrifaðir niður á drif að vali notandans





  • No labels