Hjartað í launavinnslunni er í skráningarmynd launa. Eftir að útborgun hefur verið stofnuð er þar að finna allar færslur sem sóttar eða skráðar hafa verið á starfsmann í valinni útborgun. Hægt er að komast í skáningarmyndina í gegnum launahringinn á helluvalmynd kerfisins eða í gegnum hnappinn „skrá laun" í hliðarvalmynd Launa. Áður en farið er í skráningarvalmynd þarf að tryggja að rétt útborgun sé valin í flettilistanum efst í kerfinu. | |
Í skráningarmyndinni eru helstu aðgerðir launavinnslu framkvæmdar. Hægra megin er listi yfir alla launamenn í útborgun en til þess að launamaður birtist þar þarf hann að hafa gilda færslu í spjöldunum tenging innan fyrirtækis, grunnlaun og vinnutími. | |
Trégerðin sýnir alla þá starfsmenn sem tilheyra þessari launaútborgun. Hægt er að raða nöfnum starfsmanna upp á mismunandi hátt í þessari trégerð. Til að skipta um sýn er hægrismellt á starfsmann og opnað valið "Flokkun" og sýn valin úr því fellivali. Td. er hægt að velja "Með færslur" og þá er hægt að sjá hverjir eru ekki komnir með færslur í útborgunina. Þegar hægrismellt er á starfsmenn í trégerð í launaskráningu er einnig hægt að velja "Víkka" og "Fella". Víkka opnar á sýn á öll spjöld allra starfsmanna á meðan Fella dregur allt saman þannig að aðeins nöfn starfsmanna séu sýnileg. Einnig er hægt að minnka/stækka svæðið "launamannatré" með því að smella með músinni á "splitter" á milli launamannarés og launaskráningarsvæðis og draga svæðið til hægri eða vinstri. | |
| Efri tækjaslá Afstemming og skilagreinar opnar sömu myndina, launaseðill opnast í sér flipa og sama er með Áætlun. |
Hnappurinn Útborganir býður upp á nokkra möguleika, en þegar smellt er á þann hnapp þá kemur á skjáinn spretti gluggi með yfirliti yfir allar útborganir valins starfsmanns á líðandi ári. Ef hægri smellt er á eina útborgun, þá kemur val um að skoða launaseðil þeirrar útborgunar, fara inn í launaskráningu þeirrar útborgunar, skoða ávinnslu starfsmanns eða skoða áramótastöðu hans. | |
Neðri tækjaslá | |
Hægt er að draga inn þau svæði í launaskráningu sem hentar hverjum og einum notenda með því að smella á "Velja dálka" hnappinn og þegar þú ert kominn með það útlit sem hentar er hægt að vista það með því að smella á "Geyma útlit". | |
Þessi hnappur er notaður til að sækja fasta liði á launamann. | |
| Ef að búið er að sækja fasta liði á launamann áður þá kemur upp valgluggi þar sem í boði er að yfirskrifa þá liði sem hafa þegar verið sóttir |
Þessi hnappur er notaður til að reikna laun valins starfsmanns. | |
StaðgreiðslaLaunamenn sem þiggja laun frá öðrum launagreiðenda geta óskað eftir að laun þeirra fari strax í annað skattþrep. Ef um einskiptis aðgerð er að ræða, er launaliður 9140 sleginn inn í launaskráningu og upphæðin fyrir annað skattþrep skráð í upphæðasvæðið. Ef um fastar greiðslur er að ræða, er launaliður 9140 sleginn inn í fasta launaliði starfsmanns á sama hátt, þ.e.a.s. launaliður 9140, eining 1 eða 100 eftir því hvernig launaliður 9140 er stilltur, og svo upphæðin fyrir annað eða þriðja skattþrep. |
.