Hægt er að setja inn ýmsar "spurningar" sem birtast á starfsmannavef þar sem hægt er að fá samþykki starfsmanns við þessum atriðum.
Stillitafla fyrir spurningarnar er aðgengileg í kerfisvalmynd undir Aðgerðir > Stillingar > Samþykki.
Það er hægt að skilgreina eftirfarandi atriði eftir því sem við á:
- Þann texta sem á að birtast á starfsmannavefnum
- Tækniheiti þess spjalds sem á að uppfærast við svarið
- Tækniheiti og gildi þess svæðis sem á að uppfærast við svarið
- Tímabilið sem viðkomandi spurning á að birtast á starfsmannavef
- Netföng þeirra aðila sem eiga að fá tölvupóst þegar starfsmaður staðfestir svar á starfsmannavef
- Sniðmát fyrir þann texta sem á að sendast í tölvupósti
- Linkur á vefsíðu sem inniheldur frekari upplýsingar, t.d. linkur á síðu í starfsmannahandbók
- Viðhengjategund ef starfsmaður á að geta vistað viðhengi með svarinu
- Ráðningarmerkingu, ef spurningin á bara að birtast hjá starfsmönnum með ákveðnar ráðningarmerkingar
- Tegund ráðningar, ef spurningn á bara að birtast hjá starfsmönnum með ákveðnar tegundir ráðningar
- Virkt - ef hakað er við þá birtist spurning á starfsmannavef m.v. þær stillingar sem skilgreindar eru á spurningu en spurning birtist ekki ef hakið er tekið úr