Ákveðin gildi fylgja kerfinu í upphafi en þeim er hægt að breyta eftir þörfum.
Stofngögnin undir Ráðningar - Stofngögn eru; Staða umsóknar, Röðun, Staða auglýsinga, Flokkun auglýsinga, Bréf og Umsóknarvefur-stillingar.
Undir Umsóknarvefur-stillingar er hægt að setja inn logo fyrirtækis og texta um fyrirtækið, bæði á íslensku og ensku.
Undir Röðun þarf að setja inn gildi í Röðun gildi (stjörnugjöf=Umsóknarröðun og þumalputtar=Umsækjandaröðun - ATH. sama röðun er á bakvið bæði).
Lægsta gildið fær Röðun gildi =1 (ATH. lægsta gildið má ekki vera =0).
Ef tvennt er með sama númer í Röðun gildi þá raðast þetta eftir Röðun vísir nr. (lægra gildið í Röðun vísir nr. kemur á undan).
Má vera gat í númerum í Röðun gildi, birtir bara næsta númer sem er á eftir.
Ef ekki á að birta röðun á vefnum má ekkert númer vera í Röðun gildi (verður að vera tómt).