Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 5 Next »

Hægt er að setja inn ýmsar "spurningar" sem birtast á starfsmannavef þar sem hægt er að fá samþykki starfsmanns við þessum atriðum. 

Stillitafla fyrir spurningarnar er aðgengileg í kerfisvalmynd undir Aðgerðir > Stillingar > Samþykki

Það er hægt að skilgreina eftirfarandi atriði eftir því sem við á: 

  • Þann texta sem á að birtast á starfsmannavefnum
  • Tækniheiti þess spjalds sem á að uppfærast við svarið
  • Tækniheiti og gildi þess svæðis sem á að uppfærast við svarið
  • Frá og til dagsetningu á það spjald sem uppfærist við svarið. 
  • Netföng þeirra aðila sem eiga að fá tölvupóst þegar starfsmaður staðfestir svar á starfsmannavef
  • Sniðmát fyrir þann texta sem á að sendast í tölvupósti
  • Hlekk á vefsíðu sem inniheldur frekari upplýsingar, t.d. hlekkur á síðu í starfsmannahandbók
  • Viðhengjategund ef starfsmaður á að geta vistað viðhengi með svarinu
  • Ráðningarmerkingu, ef spurningin á bara að birtast hjá starfsmönnum með ákveðnar ráðningarmerkingar
  • Tegund ráðningar, ef spurningn á bara að birtast hjá starfsmönnum með ákveðnar tegundir ráðningar
  • Virkt - ef hakað er við þá birtist spurning á starfsmannavef m.v. þær stillingar sem skilgreindar eru á spurningu en spurning birtist ekki ef hakið er tekið úr


Starfsmenn sjá spurningar birtast á starfsmannavef og geta svarað þeim þar. 

Svörin vistast á starfsmenn í spjaldið Samþykki sem aðgengilegt er undir Kjarni > Mannauður > Samþykki


  • No labels