Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 2 Current »

Í listanum Orlofsflokkar er eru orlofsflokkar stofnaðir og eldri flokkum viðhaldið. Orlofsflokkar eru oft mismunandi á milli fyrirtækja. Þá eru stofnaðar fleiri línur, ein fyrir hvert fyrirtæki.. Þegar tvísmellt er á orlofsflokkinn er hægt að stofna nýjan eða breyta núverandi flokki.

Orlofsflokkur er skráður í orlofsspjald starfsmanns. Þegar starfsmaður fær greidd laun er prósentan sótt hingað til útreiknings á orlofsfé og dagarnir notaðir til að reikna orlofstíma, en þá eru dagarnir margfaldaðir með tímum á dag sem skráðir eru í spjaldið Vinnutími.


Dæmi: Orlofsflokkur númer 1 er skráður með 10,17% og 2 daga.

Starfsmaður er skráður með 8 klukkustundir á dag í spjaldið Vinnutími

Starfsmaður fær greidd 1 mánaðarlaun (100% laun), reiknivél sækir 2 daga í orlofsflokka og margfaldar þá með 8 klukkustundum úr spjaldinu Vinnutími. Útkoman er sú að starfsmaður safnar sér 16 klukkustundum vegna þessarar launagreiðslu



  • No labels