Fela Innskrá með Kjarna notanda þegar verið er að nota Single sign on
Ef verið er að nota Single sign on fyrir innskráningu á starfsmannavefinn koma upp tveir valmöguleikar, Windows innskráning og Innskrá með Kjarna notanda. Núna er hægt að fela hnappinn Innskrá með Kjarna notanda. Ef óskað er eftir þessari breytingu þarf að senda beiðni á service@origo.is
Skilyrða svæði þegar starfsmaður skráir upplýsingar um menntun, réttindi, starfsferil, hæfni og námskeið
Núna er hægt að skilyrða svæði þegar starfsmaður skráir upplýsingar í menntun, réttindi, starfsferil, hæfni og námskeið á starfsmannavefnum. Svæðin eru skilyrt í vefgildi. Hægt að sjá stillingar fyrir vefgildi hér Telja þarf upp tækniheiti þeirra svæða sem á að skilyrða. Ef óskað er eftir aðstoð við þessa breytingu þarf að senda beiðni á service@origo.is
.