Almennt 21.2.1

Tenging við Tímon - starfsmenn fram í tímann

APPAIL-7397

Því hefur verið bætt við Tímon tenginguna að núna stofnast í Tímon starfsmenn sem stofnaðir hafa verið fram í tímann í Kjarna.

Tenging við Tímon - hættir starfsmenn

Nú er hægt að láta starfsmenn merkjast hætta í Tímon þegar þeir hafa verið skráðir hættir í Kjarna. Þetta kallar þó á breytt verklag í Kjarna og stillingu í Tímon, sjá nánar hér: https://kjarni.atlassian.net/wiki/spaces/KJAR/pages/54692045

Bunkainnlestur í Kjarna með .csv skrám

APPAIL-7293

Bunkainnlestur í Kjarna með .csv skrám hefur verið bættur þannig að nú þurfa kennitölur ekki lengur að vera 10 stafir og því þarf núllið fremst ekki að vera sýnilegt. Einnig koma ekki lengur villuboð ef skipanasvæðið/tækniheitið inniheldur bil fremst eða aftast í dálki eins og gerðist áður.

Of stór mynd af logo fyrirtækis í stofnspjaldinu Fyrirtæki hægði á vefþjónustum.

APPAIL-7435

Of stór mynd af logo fyrirtækis í stofnspjaldinu Fyrirtæki var að valda hægagangi í vefþjónustum. Nú er ekki hægt að setja inn mynd í þetta svæði sem er stærri en 64kb. og kemur kerfið upp með villumeldingu þess efnis.

Stofnskrár - Ný aðgerð

APPAIL-7456

Undir Stofnskrár hefur verið bætt við aðgerðinni Fríska uppflettigögn, til að hreinsa Lookup-ið.

Bæta ManagerIDs inn í EmployeesAll vefþjónustuna

APPAIL-7429

Bætt hefur verið við gildinu ManagerIDs inn í EmployeesAll vefþjónustuna.

Vefþjónusta fyrir endurráðningu

APPAIL-7195

Búin hefur verið til vefþjónusta fyrir endurráðningu á starfsmönnum í Kjarna. Vinsamlegast sendið á service@origo.is ef óskað er eftir frekari upplýsingum.