Gátlistar 3.8.5
Aðgangur - tengja gátlista á starfsmann
Aðgangsmál voru yfirfarin í tengslum við tengingu gátlista á starfsmann ef starfsmenn eru með takmarkaðan aðgang að kerfinu.
Hægt að skrá gögn í gátlista áður en hann er vistaður
Upprunalega var það þannig að gátlisti var tengdur á starfsmann og miðað við að fyllt væri út í hann á seinni stigum. Í einhverjum tilvikum getur verið að einhver atriði gátlistans hafi þegar verið framkvæmd þegar gátlisti er tengdur á starfsmann. Því hefur þ.a.l. nú verið bætt við að hægt er að fylla út í atriði gátlista um leið og hann er tengdur á starfsmann og upplýsingarnar vistast beint í gátlistann.
Áminningarvirkni í gátlistum
Bætt hefur við áminningarvirkni í gátlistum sem er sambærileg og við aðra áminningarvirkni í kerfinu. Kerfið getur því sent út tölvupóst til að minna skilgreinda aðila á að gátlistinn sé enn óútfylltur.