Í Kjarna er hægt að skrá hæfni á starfsmenn og eins er hægt að láta umsækjendur um störf fylla út hæfni í umsóknarformi.
Hæfni í spjaldinu hæfni | Hæfni í umsóknarformi |
---|---|
Hæfni er sett upp undir Kjarni> Stofnskrár
Til að stofna hæfni í kerfinu þarf að gera eftirfarandi:
1) Stofnskrár → Hæfni - Tegundir | |
---|---|
Það fyrsta sem þarf að gera er að stofna tegund hæfni í kerfinu. Tegund hæfni er yfirflokkur á hæfninni. Í listanum hér til hliðar er dæmi um tegund hæfni. |
2) Stofnskrár → Hæfni - Skalar | |
---|---|
Því næst þarf að stofna skalann sem á að nota við viðkomandi hæfni. Hér til hliðar má sjá dæmi um 5 punkta skala. Til að stofna nýjan skala er smellt á græna plúsinn og þá opnast glugginn sem er sýndir hér til hliðar. Þar er slegið inn Heiti á skalanum og skalinn síðan settur inn þar fyrir neðan. |
3) Stofnskrár → Hæfni | |
---|---|
Að endingu þarf að stofna hæfnina sjálfa. Það þarf að setja inn heiti á hæfnina, velja inn tegund hæfni og skalann sem á að nota við viðkomandi hæfni. |