Hæfni - uppsetning
Í Kjarna er hægt að skrá hæfni á starfsmenn og eins er hægt að láta umsækjendur um störf fylla út hæfni í umsóknarformi.
Hæfni í spjaldinu hæfni | Hæfni í umsóknarformi |
---|---|
Hæfni er sett upp undir Kjarni> Stofnskrár
Til að stofna hæfni í kerfinu þarf að gera eftirfarandi:
1) Stofnskrár → Hæfni - Tegundir | |
---|---|
Það fyrsta sem þarf að gera er að stofna tegund hæfni í kerfinu. Tegund hæfni er yfirflokkur á hæfninni. Í listanum hér til hliðar er dæmi um tegund hæfni. Smellt er á græna plúsinn fyrir hverja nýja tegund sem á að stofna. |
2) Stofnskrár → Hæfni - Skalar | |
---|---|
Því næst þarf að stofna skalann sem á að nota við viðkomandi hæfni. Hér til hliðar má sjá dæmi um 5 punkta skala. Til að stofna nýjan skala er smellt á græna plúsinn og þá opnast glugginn sem er sýndir hér til hliðar. Þar er slegið inn Heiti á skalanum og skalinn síðan settur inn þar fyrir neðan. Smellt er á græna plúsinn fyrir hvern nýjan skala sem á að stofna. |
3) Stofnskrár → Hæfni - Flokkanir | |
---|---|
Hægt er að flokka saman ákveðna tegundir af hæfni. Ekki er nauðsynlegt að nota þessa flokkun. Til stofna Flokkun hæfni er smellt á græna plúsinn. Flokkun hæfni er síðan tengd á Tegund hæfni. Hægt er að tengja eina flokkun við margar tegundir. |
4) Stofnskrár → Hæfni | |
---|---|
Að endingu þarf að stofna hæfnina sjálfa. Smellt er á græna plúsinn fyrir hverja nýja hæfni sem á að stofna. Það þarf að setja inn heiti á hæfnina, velja inn tegund hæfni og skalann sem á að nota við viðkomandi hæfni. Hægt er að setja gildistíma á hæfni og er þá árafjöldinn valin í reitnum Gildistími í árum. Kemur þá sjálfkrafa endadagsetning í hæfnispjald starfsmannsins. Ef hæfni er Kjarnahæfni er hakað í það í stofngögnum hæfni. Birtist það svo í hæfnispjaldi starfsmanns ef hann er með kjarnahæfni skráða á sig og í listum yfir hæfni starfsmanna. Ef hæfni á ekki að birtast á umsóknarvef er hakað í Fela á vef. Athugið þetta á bara við um umsóknarvefinn, ekki starfsmannavefinn og Kjarna vefinn. |