Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 7 Next »

Ráðningar/onboarding ferlið er í fjórum skrefum.

Í Onboarding ferlinu kom þær upplýsingar sem umsækjandinn skráði inn þegar hann sótti um og einnig þær upplýsingar sem óskað var eftir frá umsækjanda (t.d. lífeyrissjóð, skattkort og fleira). Hér getur notandinn yfirskrifað gögnin ef við á í ferlinu.

Í skrefi 1 birtast persónuupplýsingar umsækjandans sem hann fyllti út þegar hann sótti um starfið. Þar til viðbótar er hægt að setja inn vinnunetfang, vinnusíma, Notandanafn og upplýsingar um nánasta aðstanda.

Ef kveikt er á sjálfvirkri stofnun notanda þá stofnast notandi í Kjarna með því hlutverki sem skilgreint er ef notandanafn og netfang er skráð.

Til að fara á næstu síðu er smellt á Næsta, neðst í hægra horninu.

Í skrefi 2 þarf að setja inn upplýsingar fyrir Tengingu innan fyrirtækis, orlofsupplýsingar, grunnlaunaupplýsingar og upplýsingar um vinnutíma.

Til að fara á næstu síðu er smellt á Næsta, neðst í hægra horninu.

Í skrefi 3 þarf að setja inn upplýsingar um lífeyrissjóð, banka, stéttarfélag og skattkort.

Til að fara á næstu síðu er smellt á Næsta, neðst í hægra horninu.

Í skrefi 4 kemur yfirlit yfir allt sem var skráð í skrefum 1-3. Hægt er að hætta við eða fara á fyrri síður til að lagfæra ef þarf.

Starfsmaður stofnast í mannauðshluta Kjarna með því að smella á Stofna starfsmann neðst í hægra horninu. Ef sleppt var að skrá einhverjar upplýsingar í ferlinu þá stofnast ekki þau spjöld í mannauðshluta Kjarna.

Þegar búið er að stofna starfsmanninn þá fær umsækjandinn sjálfkrafa stöðuna Ráðinn í starfið og dettur þá út af listanum Tilbúinn til ráðningar.

  • No labels