Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 6 Current »

Þekking og fræðsla
Undir þekking og fræðsla eru vistaðar upplýsingar um menntun, hæfni, réttindi og þau námskeið sem starfsmaður hefur sótt á vegum fyrirtækisins. Hægt er að handslá gögnin inn en upplýsingar um menntun, hæfni og réttindi geta einnig komið úr ráðningarkerfinu hafi starfsmaður verið ráðinn í gegnum auglýsingu þar sem spurt var um þessa þætti. 
Í hverju spjaldi eru fellilistar. Með kerfinu koma grunnlistar en viðskiptavinir geta sjálfir uppfært sína lista og bætt við í grunngögnum fyrirtækis.

Í spjaldinu réttindi er haldið utan um þau réttindi sem starfsmenn hafa og nýtast í starfi hjá fyrirtækinu. Viðskiptavinir geta sjálfir sett inn hvaða réttindi þau vilja hafa undir grunngögn fyrirtækis. Hæfni og réttindi er hægt að skrá á einstaka starfsmann sem og á stöðu starfsmanns og þannig er einfalt að bera saman hversu vel starfsmaður uppfyllir kröfur starfsins. 

Til að stofna nýja færslu í spjaldi eru notaðir viðeigandi aðgerðarhnappar í tækjastiku. Sjá nánar hér.
 

Kerfið býður upp á þann möguleika að senda sjálfvirkar áminningar á ákveðna aðila þegar réttindi renna út. Hægt er að senda á fyrirfram skilgreinda aðila eða ákveðin netföng. Áminningar eru stilltar undir Stofnskrár > Áminningar en það má sjá nánari upplýsingar um áminningarnar hér

 Ákveðin námskeið geta einnig gefið réttindi. Þegar starfsmaður lýkur námskeiði sem veitir réttindi færir kerfið réttindin yfir í réttindaspjald starfsmanns. Nánari upplýsingar um það eru í handbók fræðslukerfisins.


  • No labels