...
Það er hægt að skilgreina eftirfarandi atriði eftir því sem við á:
- Þann texta sem á að birtast á starfsmannavefnum
- Tækniheiti þess spjalds sem á að uppfærast við svarið, ef við á.
- Tækniheiti og gildi þess svæðis sem á að uppfærast við svarið, ef við á.
- Tímabilið sem viðkomandi spurning á að birtast á starfsmannavef, ef við á
- Netföng þeirra aðila sem eiga að fá tölvupóst þegar starfsmaður staðfestir svar á starfsmannavef, ef tölvupóstur á að sendast við svar
- Sniðmát fyrir þann texta sem á að sendast í tölvupósti, ef tölvupóstur á að sendast við svar
- Linkur á vefsíðu sem inniheldur frekari upplýsingar, t.d. linkur á síðu í starfsmannahandbók
- Viðhengjategund ef starfsmaður á að geta vistað viðhengi með svarinu
- Ráðningarmerkingu, ef spurningin á bara að birtast hjá starfsmönnum með ákveðnar ráðningarmerkingar
- Tegund ráðningar, ef spurningn á bara að birtast hjá starfsmönnum með ákveðnar tegundir ráðningar
- Virkt - ef hakað er við þá birtist spurning á starfsmannavef m.v. þær stillingar sem skilgreindar eru á spurningu en spurning birtist ekki ef hakið er tekið úr