Í spjaldinu starfsmaður eru skráðar allar grunnupplýsingar um viðkomandi starfsmann. Upplýsingum um starfsmann er viðhaldið í þessu spjaldi, fyrir utan starfsaldur sem reiknast út frá dagsetningum og færslum í spjaldinu tenging innan fyrirtækis og færslum í spjaldinu starfsaldur.
Ef fyrirtæki eru með tengingu milli Kjarna og Þjóðskrár uppfærast lögheimili starfsmanna í þessu spjaldi til samræmis við Þjóðskrá þegar keyrð er aðgerðin Uppfæra heimilisföng í Kjarna undir flipanum Aðgerðir. Aðsetri er hinsvegar aðeins hægt að breyta handvirkt.
Ef birta á starfsmannamyndir í starfsmannaspjaldi: Starfsmannamyndir