Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 25 Next »

Ráðningarferlið er í fimm skrefum. Það er mismunandi eftir ferlum hvort og þá hvaða gögn koma í hverju skrefi fyrir sig. Ef óskað var eftir gögnum frá umsækjanda þá koma þau gögn í ferlinum.

Nýráðning

  • Engin gögn koma þar sem starfsmaðurinn er ekki til fyrir.

  • Ef óskað var eftir gögnum frá umsækjanda þá koma þau í ferlinum.

Endurráðning

  • Tenging innan fyrirtækis kemur tómt.

  • Engar upplýsingar eru sóttar fyrir banka, persónuafslátt, grunnlaun, lífeyrissjóð og stéttarfélög. Ef óskað var eftir gögnum frá umsækjanda koma þau gögn í ferlinum.

  • Endadagsetning sett á öll spjöld, þrátt fyrir að ekki sé fyllt út í þau.

  • Passa þarf ef starfsmaður á tvö launamannanúmer þá lokast þær færslur sem tilheyra starfsmanninum, banki og persónuafsláttur, og stofnast nýjar. Það þarf því að setja inn upplýsingar í þessu skrefi.

Tilfærsla

  • Upplýsingar eru stóttar í starfsmannaspjaldið.

  • Tenging innan fyrirtækis kemur tómt.

  • Öll spjöld tengd launamannanúmeri eru sótt en fá öll endadagsetningu og nýjar færslur stofnast þótt engu sé breytt (fyrir utan launamannanúmerið spjaldið). Ef óskað var eftir gögnum frá umsækjanda koma þau gögn í ferlinum.

  • Upplýsingar eru sóttar fyrir banka og persónuafslátt en fá öll endadagsetningu og nýjar færslur stofnast þótt engu sé breytt. Ef óskað var eftir gögnum frá umsækjanda koma þau gögn í ferlinum.

  • Ef yfirmaður er að keyra þessa aðgerð og hefur ekki aðgang að þessum starfsmanni í dag þá fær hann engar upplýsingar úr spjöldunum nema starfsmannaspjaldinu. Öll spjöld fá samt sem áður endadagsetningu og nýjar færslur stofnast með þeim upplýsingum sem settar voru inn.

  • Í þessum ferli er í boði að bara fyrstu tvö skrefin komi upp, Grunnupplýsingar og Persónuupplýsingar, sem kemur sér vel ef notandi hefur ekki aðgang að launum. Lokast þá ekki þau spjöld sem talin eru upp hér að ofan. Setja þarf inn stillingu til að fá þessa virkni inn og skal senda á service@origo.is

Bæta við starfi

  • Upplýsingar sóttar í starfsmannaspjaldið.

  • Tenging innan fyrirtækis og önnur spjöld tengt launamannanúmeri koma tóm.

  • Upplýsingar eru sóttar fyrir banka og persónuafslátt en fá öll endadagsetningu og nýjar færslur stofnast þótt engu sé breytt.

  • Ef óskað var eftir gögnum frá umsækjanda þá koma þau í ferlinum.

Í Onboarding ferlinu koma þær upplýsingar sem umsækjandinn skráði inn þegar hann sótti um og einnig þær upplýsingar sem óskað var eftir frá umsækjanda (t.d. lífeyrissjóð, persónuafslátt og fleira). Hér getur notandinn yfirskrifað gögnin ef við á í ferlinu.

Í skrefi 1 Grunnupplýsingar birtast persónuupplýsingar umsækjandans sem hann fyllti út þegar hann sótti um starfið.

Hérna er líka sett inn sú staða sem starfsmaðurinn gegnir í fyrirtækinu, spjaldið Tenging innan fyrirtækis. Ef skrá á framtíðarfærslu er hægt að gera það með því að bæta við spjaldi. Á það t.d. við um þegar verið er að ráða starfsmenn í tímabundið starf eða sumarvinnu.

Til að fara á næstu síðu er smellt á Næsta, neðst í hægra horninu.

Í skrefi 2 Persónuupplýsingar eru upplýsingar um síma, heimili og nánasta aðstandanda. Ef óskað var eftir upplýsingum um nánasta aðstandanda frá umsækjandanum koma þær upplýsingar sjálfkrafa hér.

Hér er auk þess hægt að skrá vinnunetfang, vinnunetfang og notendanafn ef það liggur fyrir. Ef kveikt er á sjálfvirkri stofnun notanda stofnast einnig notandi í ferlinu.

Til að fara á næstu síðu er smellt á Næsta, neðst í hægra horninu.

image-20240809-114218.png

Í skrefi 3 Launaupplýsingar eru settar inn upplýsingar um grunnlaun, persónuafslátt og bankaupplýsingar. Ef óskað var eftir upplýsingum um banka og persónuafslátt frá umsækjandanum koma þær upplýsingar sjálfkrafa hér. Hægt er að bæta við spjaldi fyrir persónuafslátt ef skrá á t.d. makakort.

Til að fara á næstu síðu er smellt á Næsta, neðst í hægra horninu.

(info) Í þessi skrefi undir Grunnlaun er hægt að birta svæðin fyrir álag ef verið er að nota þau. Ef óskað er eftir að birta þau svæði í ráðningarferlinu skal senda beiðni á service@origo.is

Í skrefi 4 Viðbótarlaunaupplýsingar eru settar inn upplýsingar um orlof, vinnutíma, lífeyrissjóð, séreignasjóð og stéttarfélag. Hægt er að bæta við spjaldi fyrir lífeyrissjóð, séreignasjóð, stéttarfélag og starfsmannafélag ef skrá á fleiri en eina færslu. Ef verið er að gera tilfærslu þá koma þær upplýsingar sem skráðar eru í þessi spjöld hér.

Ef óskað var eftir upplýsingum um séreignasjóð og stéttarfélag frá umsækjandanum koma þær upplýsingar sjálfkrafa hér. Ef um tilfærslu er að ræða og óskað var eftir gögnum frá umsækjandanum þá yfirskrifar það gögnin sem skráð eru á starfsmanninn í þessum spjöldum í ráðningarferlinu, þ.e. gögnin úr spjöldunum eru ekki sótt.

image-20240809-114237.pngimage-20240809-114244.png

Í skrefi 5 Ráða eru yfirlit yfir þær upplýsingar sem voru skráðar inn. Það stofnast einungis þau spjöld sem upplýsingar voru skráðar í.

Ef breyta á einhverjum gögnum er valið Til baka. En ef gögnin eru rétt er valið Ráða og hefur þá umsækjandinn stofnast sem starfsmaður.

Þegar búið er að stofna starfsmanninn þá fær umsækjandinn sjálfkrafa stöðuna Ráðinn í starfið og dettur þá út af listanum Tilbúinn til ráðningar.

Farið er í gegnum sama feril ef um endurráðningu, tilfærslu eða bæta við starfi er að ræða. Í ferlinum fyrir tilfærslu eru sóttar upplýsingar sem skráðar eru á starfmanninn og tengjast starfsmannanúmerinu og launamannanúmerinu en í ferlinum fyrir Bæta við starfi eru upplýsingar sóttar sem tengjast starfsmannanúmerinum þar sem verið er að stofna nýtt launamannanúmer í þeim ferli.

Hægt er að útbúa rafræna ráðningarsamninga eftir að starfsmaður hefur verið ráðinn. Nánar um rafræna ráðningarsamninga hér.

  • No labels