Í Kjarna er hægt að skrá hæfni á starfsmenn og eins er hægt að láta umsækjendur um störf fylla út hæfni í umsóknarformi. Til að birta hæfni í kerfinu þarf að huga að eftirfarandi þáttum:
Stofnskrár → Skalar | |
---|---|
Það fyrsta sem þarf að gera er að stofna skalann sem á að nota við viðkomandi hæfni. Hér til hliðar má sjá dæmi um 5 punkta skala. Til að stofna nýjan skala er smellt á græna plúsinn og þá opnast glugginn sem er sýndir hér til hliðar. Þar er slegið inn Heiti á sklanum og skalinn síðan settur inn þar fyrir neðan. |
Stofnskrár → Tegund hæfni | |
---|---|
Því næst þarf að stofna tegund hæfni í kerfinu. Tegund hæfni er yfirflokkur á hæfninni. Í listanum hér til hliðar er dæmi um tegund hæfni. |
Stofnskrár → Hæfni | |
---|---|
Að endingu þarf að stofna hæfnina sjálfa.
Það þarf að setja inn heiti á hæfnina, velja tegund hæfni og skalann sem á að nota við viðkomandi hæfni. |