Undir Mannauður > Beiðnir getur yfirmaður séð yfirlit yfir orlofsbeiðnir sem krefjast samþykkis. Þar getur yfirmaðu svo annaðhvort samþykkt eða hafnað beiðnum.
Þegar stjórnandi samþykkir/hafnar orlofsbeiðni, fær starfsmaðurinn sendan tölvupóst þess efnis.
Ef orlofsbeiðnir eru samþykktar þá stofnast orlofsfærslur í viðveruhluta starfsmanns á Kjarnavef.
Fyrir þá viðskiptavini sem eru ekki með Viðverukerfishluta Kjarna en vilja nýta sér orlofsbeiðnavirknina þá er hægt að birta flipa fyrir Samþykkt orlof undir Mannauður > Orlof. Sjá nánar hér
Ef viðskiptavinir vilja birta þennan flipa eru þeir beðnir um að senda beiðni þess efnis á service@origo.is