Beiðnir
Undir Mannauður > Beiðnir getur yfirmaður séð yfirlit yfir þær beiðnir sem krefjast samþykkis. Þar getur yfirmaður svo annaðhvort samþykkt eða hafnað beiðnum.
Einnig er hægt að birta flipa fyrir Allar beiðnir. Í sjónarhorninu Allar beiðnir geta Admin notendur samþykkt (eða hafnað) þessum beiðnum í fjarveru yfirmanna og yfirmenn geta einnig samþykkt (eða hafnað) í þessu sjónarhorni. Í þessu yfirliti birtast beiðnir eitt ár aftur í tímann og hægt er að sjá hvort beiðni var samþykkt eða hafnað, hvenær og af hverjum. Ef viðskiptavinir vilja birta þennan flipa þarf að senda inn beiðni á service@origo.is þess efnis.