Beiðnir - orlof

Undir Mannauður > Beiðnir getur yfirmaður séð yfirlit yfir orlofsbeiðnir sem krefjast samþykkis. Þar getur yfirmaður svo annaðhvort samþykkt eða hafnað beiðnum.

image-20240220-152425.png

Þegar stjórnandi samþykkir/hafnar orlofsbeiðni, fær starfsmaðurinn sendan tölvupóst þess efnis.

Ef orlofsbeiðnir eru samþykktar þá stofnast orlofsfærslur í viðveruhluta starfsmanns (ef verið er að nota viðveruhluta Kjarna).

image-20240220-152925.png

Fyrir þá viðskiptavini sem eru ekki með Viðverukerfishluta Kjarna en vilja nýta sér orlofsbeiðnavirknina þá er hægt að birta flipa fyrir Samþykkt orlof undir Mannauður > Orlof. Stofnast þá ekki tímar í viðveruhluta Kjarna þegar orlofsbeiðni er samþykkt. Sjá nánar hér

Ef viðskiptavinir vilja birta þennan flipa eru þeir beðnir um að senda beiðni þess efnis á service@origo.is

 

Í viðveruhluta Kjarna er hægt að læsa tímabili þegar því er lokið. Ef beiðni er samþykkt eftir að tímabili er lokið (verið er að samþykkja beiðni þar sem dagsetningin er liðin) þá kemur melding þess efnis um að ekki hafi stofnast tímar í viðverukerfi þar sem tímabil sé læst.

Í þessum tilvikum þarf annað hvort að opna tímabilið eða handskrá færslurnar í viðveruhluta Kjarna í client. Sjá upplýsingar um viðveruna hér.