Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Version History

« Previous Version 54 Next »

Almennt

image-20250122-145147.png

Launatöflur eru stofnaðar og þeim er viðhaldið í listanum launatöflur. Stofnaður er einn kjarasamningur fyrir hvern hóp sem hlýtur sömu réttindareglum, t.d. varðandi orlofsflokka, vinnuskyldu miðað við 100% laun og þrepahækkanir. Hver samningur getur síðan haft sínar stillingar.

Ef hlutfall og Fastar er skráð á samning núll erfist það niður á aðra samninga.  Skrá þarf Hlutföll og Fastar á ákveðin samning ef ekki á að nota sama gildi og er á samningi núll.

Hægt er að handslá inn upplýsingar um launatöflur en einnig er hægt að lesa töflur inn úr skrá. Í þessum lista er launatöflum einnig viðhaldið og framkvæmdar hækkanir þegar við á. Upplýsingar sem skráðar eru í launatöflu er hægt að taka út í excel, word, pdf ofl.

image-20250122-145552.png

Hér er listi yfir alla samninga sem hafa verið skráðir í kerfið. Samningum er raðað eftir númeri.

Stofna launatöflu

image-20250122-150326.png

Launatöflur eru stofnaðar með því að smella á grænan plúsinn á valstikunni. Númer á kjarasamningnum er skráð í flipann sem opnast, ásamt nafni og gildistíma

Samningur stofnaður með því að smella á framkvæma

image-20250122-150809.png

Fjöldi aukastafa í launatöflu

Hægt er að stilla hversu margir aukastafir eru sýnilegir í launatöflu.

Farið er í Stillingar-Gildi og skipunin PayStep.DisplayFormat er stillt á N0,N1,N2,N3 eða N4 allt eftir því hvað á að sýna marga aukastafi.

Í þessu dæmi er N2 skráð í gildi og því birtir launataflan tvo aukastafi.

Þegar taflan er flutt úr excel þá koma jafn margir aukastafir og eru skilgreindir í stillingu.

Töfluupphæðir

image-20250122-152723.png

Töfluupphæðir

Undir töfluupphæðir er hægt að skoða fjárhæðir valinna launaliða.

Einnig er hægt að hægri smella á gildistíma samnings og komast í Töfluupphæðir þaðan.

image-20250122-152208.png

Hægt er að skrá þá launaliði sem óskað er að birtist með því að setja inn undir Stillingar - Gildi með skipuninni  „PayTable.Amount.Wages“ og númer launaliða skráð í gildi.

Ef ekkert er skráð er hægt að slá inn þá launaliði sem óskað er eftir að sjá upphæðir fyrir

Þegar smellt er á hnappinn  „Töfluupphæðir“  birtist valmynd þar sem hægt er að skrá inn valmöguleika fyrir listann.

image-20250122-153106.png

Smellt er á framkvæma til að kalla fram listann.

image-20250122-153137.png

Taflan birtir fjárhæðir valinna launaliða niður á launaflokka og þrep.

Þrep

image-20250122-145331.png

Launaupphæðir samninga eru skráðar í flipann Þrep. Skrá þarf launaflokk og þrep.

Hlutföll

image-20250122-153850.png

Í þennan flipa eru skráð inn hlutföll launaliðar, þ.e.a.s. hlutfall af launaupphæð í launatöflu.

Ef aðeins er sett hlutfall í launatöflu nr. 0 en ekkert skráð í aðrar launatöflu, sækir Kjarni hlutfallið í launatöflu nr. 0

Dæmi um svona launalið gæti verið yfirvinna ef hún reiknast alltaf 1,0385% af launum starfsmanns þarf einingis að setja þann launalið í töfllu nr. 0

Ef hlutfall dagvinnu er misjafnt eftir vinnuskyldu starfsmanna þarf að setja rétt hlutfall í hverja launatöflu fyrir sig

Dæmi: Dagvinnutímakaup starfsmanns er 0,615 af launum  (launaliður 130) reiknast sem 0,615% af launum í launatöflu.

Ef álag reiknast sem hlutfall af dagvinnu þarf að setja rétt hlutfall á hvern launalið fyrir sig:

Hér fyrir neðan má sjá hvernig hlutfallið er reiknað:

Hafa þarf þetta í huga ef hlutfall dagvinnutíma er að breytast t.d. vegna styttingar á vinnuskyldu

Dæmi:

Hlutfall dagvinnu er 0,615 sem er vegna vinnuskyldu 162,5 á mánuði.

100/162,5=0,615

Hlutfall 18,5% álags er þá= 0,615 x 18,5% = 0,113775

Fastar

image-20250122-160238.png

Í fasta eru skráðir inn launaliðir þar sem hver eining hefur fasta krónutölu. 

Dæmi: Starfsmaður greiðir fast gjald í mötuneytisáskrift á hverjum mánuði. Launaliðurinn er 7400 og gjaldið er 9.000 pr. mánuð.

Fasti er skráð á samning núll en einnig er hægt að skrá á samning ef ekki á að nota sömu krónutölu í öllum samningum fyrir ákveðin launalið

Aldurshækkanir

image-20250123-134205.png

Í flipanum aldurshækkanir eru settar inn þær reglur sem gilda um hækkanir á launum samkvæmt líf- eða starfsaldri.

Þar undir eru settar inn reglur sem varða orlofshækkanir, launaflokka – og þrepahækkanir, álagshækkanir og aukaflokkshækkanir. 

Reikniliðir / Hópar

image-20250123-135014.png

Hægt er að skrá reikniliði/hópa beint inn á kjarasamninga. Á myndinni sést að ef starfsmaður sem fær greidd laun skv. þessum kjarasamningi, fær greiddan launalið 100 Mánaðarlaun þá á hann að fá launaliðinn 530 Bónus í sama hlutfalli. Reikniliðinn sjálfann þarf að stofna sérstaklega og er hann sóttur í fellival í punktunum þremur. Bónus prósentan kemur úr reikniliðnum en einnig er hægt að yfirskrifa hana í reitnum Gildi.

Reiknihópar virka á sama hátt og reikniliðir en þeir hafa það fram yfir reikniliði að reiknihópur reiknast einnig ofan á reikniliði. 
Þegar breytingar verða á launatöflum t.d. við gerð nýrra kjarasamninga er keyrð aðgerðin hækka launatöflur í tækjaslánni.

Einnig er hægt að setja marga reikniliði í sama reiknihóp

Réttindi

image-20250123-135613.png

Hægt er að skilgreina veikindarétt starfsmanna beint inn á kjarasamning eftir því sem við á.

Stillingarnar eru settar inn miðað við þann starfsaldur sem skilgreindur er í viðkomandi samningi.

Fyrir veikindarétt vegna barna þarf að setja hak í svæðið "Réttindi barna"

Hækkun launatöflu

image-20250123-153707.png

Hægt er að hækka launatöflur með einföldum hætti sjá nánar hér

Eyða launatöflu

image-20250123-144728.png

Ef eyða þarf launatöflu þar sem eru færslur í flipunum  Reikniliðir/Hópar, Réttindi og eða Vinnutímaskilgreiningar, skal hafa samband við ráðgjafa Origo með því að senda póst á service@origo.is

Ef eyða þarf launatöflu þar sem ekkert er skráð í flipana Reikniliðir/Hópar, Réttindi og/eða Vinnutímaskilgreiningar þarf að byrja á því að eyða upplýsingum úr flipunum Þrep, Hlutföll og Fastar og smella á vista.

Að því loknu er skrifuð eftirfarandi skipun inn í skipanagluggann í neðra vinstra horni:

PayTablePeriod.List

image-20250123-145331.png

Skipunin PayTablePeriod.List skilar lista yfir allar launatöflur í Kjarna.

Til að vera öruggur um að eyða réttri launatöflu er Vísir dreginn inn í listann.

Rétt lína valin og henni eytt með rauðum mínus í tækjaslá.

Innlestur á upphæðum í launatöflu

image-20250123-145616.png

Ef lesa þarf inn nýjar fjárhæðir í launatöflu er mælt með að byrja á því að hækka eldri launatöflu Hækka launatöflu  um 0 og setja inn nýja gildistímann og eyða svo launaflokkum í töflunni áður en nýir launaflokkar eru lesnir inn.

Kosturinn við að afrita eldri töflu á nýja dagsetningu er að þá afritast allir flipar með (Hlutföll - Fastar - Aldurshækkanir - Reikniliðir/Hópar og Réttindi).

Þegar kominn er inn nýr gildistími fyrir töfluna þarf að eyða launaflokkunum sem fyrir eru og lesa inn launaflokka og þrep


Reitir sem þurfa að veraí skjali;

  • Tag

  • PayGrade

  • PayStep01

  • PayTablePeriodID


Gera þarf excelskjal skv. myndinni hér fyrir til hliðar með launaflokkum og þrepum, ásamt fjárhæðum sem koma eiga inn í launatöfluna:

Launataflan þarf að vera á excel formi, en vistuð sem csv skjal.

Skrá þarf fyrirsagnir dálkanna sem hér segir:

Í dæminu hér á að lesa inn í launatöflu nr. 900 sem gildir frá 1. jan. 2016

900:01.01.2016  (Þessi lína á að fylgja öllun línum launatöflunnar

Launaflokkur nr. 123   og í þrepi 0 á að koma 100000

Athugið að það má alls ekki hafa punkta til að skipta þúsundum í upphæðum, dæmi: 100000 en ekki 100.000 !

Þegar excel skjalið með nýrri launatöflu er tilbúið er þessi skipun skráð í skipunargluggann;

PayTablePeriodStep.Import

Þegar skipunin er keyrð (enter) opnast þessi gluggi.

Sækja þarf skjalið sem gert var fyrir launatöfluna með því að smella á hnappinn 

Setja hak við Stofna og smella svo á lesa

Færslurnar koma svona inn og þá þarf að muna að smella á vista hnappinn

  • No labels