Aldurshækkanir - Stillingar á launatöflur
Tengja þarf hækkunarreglur inn á launatöflur auk þess sem skilgreina þarf hækkunarmynstrið fyrir þessa tilteknu launatöflu.
Farið er í Launatöflur undir Kjarni > Laun.
Viðkomandi launatafla er fundin og farið í flipann Aldurshækkanir, sjá punkt nr. 1 á skjámynd. Tryggja þarf að viðkomandi launatafla sé örugglega valin, sjá punkt nr. 2. Smellt er á hnappinn og viðkomandi hækkun er valin, sjá punkt nr. 3. Færslan er svo vistuð.
Þegar færslan hefur verið vistuð þá er smellt á , hækkunarmynstrið skilgreint fyrir viðkomandi launatöflu og breytingarnar vistaðar með því að smella á Geyma og loka.
Ef það kemur upp villa þegar hækkunarmynstrið er vistað þá hefur líklega gleymst að vista hækkunarregluna inn á töfluna, sjá punkt nr. 4 á skjámyndinni hér að ofan.
Dæmi um álagshækkun v/starfsaldurs:
Dæmi um aukaflokkahækkun v/lífaldurs:
Dæmi um þrepahækkun v/lífaldurs:
Orlofshækkun |
|
---|---|
| Ef um mismunandi orlofsflokkahækkanir eru að ræða eftir samningum verður að stofna orlofshækkunarreglur í samræmi. Flipinn Aldurshækkanir valinn. Til að stofna nýja orlofsflokkahækkun er farið í punktana þrjá. |
| Þar er farið í græna plúsinn á valstiku. |
| Hækkunarregla vísir; Næsta lausa númer á hækkunarreglu. Hækkunarregla; Velja nafn á hækkunarregluna Starfsaldurshækkun; Velja þarf regluna sem kerfið á að fara eftir; Lífaldur, starfsaldur í fyrirtæki eða heildarstarfsaldur. Stofna og loka. |
| Til að skilgreina hækkunarregluna þarf að velja hana og fara í stækkunarglerið |
| Starfsaldursregla; Fara í punktana þrjá til að velja inn starfsaldursreglu; Lífaldur, starfsaldur í fyrirtæki eða heildarstarfsaldur. Starfsaldur; Setja inn árafjöldann sem þarf að vera búið að ná til að hækka um flokk. Orlofsflokkur fé og Orlofsflokkur tímar; setja inn orlofsflokk.
Vista og loka.
|