Ráðningarferlið er í fimm skrefum. Það er mismunandi eftir ferlum hvort og þá hvaða gögn koma í hverju skrefi fyrir sig.
Nýráðning
Engin gögn koma.
Endurráðning
Tenging innan fyrirtækis kemur tómt.
Engar upplýsingar eru sóttar fyrir banka, skattkort, grunnlaun, lífeyrissjóð og stéttarfélög.
Endadagsetning sett á öll spjöld, þrátt fyrir að ekki sé fyllt út í þau.
Passa þarf ef starfsmaður á tvö launamannanúmer þá lokast þær færslur sem tilheyra starfsmanninum, banki og skattkort, og stofnast nýjar. Það þarf því að setja inn upplýsingar í þessu skrefi.
Tilfærsla
Upplýsingar eru stóttar í starfsmannaspjaldið.
Tenging innan fyrirtækis kemur tómt.
Öll spjöld tengd launamannanúmeri eru sótt en fá öll endadagsetningu og nýjar færslur stofnast þótt engu sé breytt (fyrir utan launamannanúmerið spjaldið).
Upplýsingar eru sóttar fyrir banka og skattkort en fá öll endadagsetningu og nýjar færslur stofnast þótt engu sé breytt.
Ef yfirmaður er að keyra þessa aðgerð og hefur ekki aðgang að þessum starfsmanni í dag þá fær hann engar upplýsingar úr spjöldunum nema starfsmannaspjaldinu. Öll spjöld fá samt sem áður endadagsetningu og nýjar færslur stofnast með þeim upplýsingum sem settar voru inn.
Bæta við starfi
Upplýsingar sóttar í starfsmannaspjaldið.
Tenging innan fyrirtækis og önnur spjöld tengt launamannanúmeri koma tóm.
Upplýsingar eru sóttar fyrir banka og skattkort en fá öll endadagsetningu og nýjar færslur stofnast þótt engu sé breytt.
Þegar búið er að stofna starfsmanninn þá fær umsækjandinn sjálfkrafa stöðuna Ráðinn í starfið og dettur þá út af listanum Tilbúinn til ráðningar.
Farið er í gegnum sama feril ef um endurráðningu, tilfærslu eða bæta við starfi er að ræða. Í ferlinum fyrir tilfærslu eru sóttar upplýsingar sem skráðar eru á starfmanninn og tengjast starfsmannanúmerinu og launamannanúmerinu en í ferlinum fyrir Bæta við starfi eru upplýsingar sóttar sem tengjast starfsmannanúmerinum þar sem verið er að stofna nýtt launamannanúmer í þeim ferli.
Hægt er að útbúa rafræna ráðningarsamninga eftir að starfsmaður hefur verið ráðinn. Nánar um rafræna ráðningarsamninga hér.