Kjarni styður jafnlaunavottun. Í Kjarna er hægt að halda utan um verðmætamat starfa ásamt öðrum upplýsingum tengdum jafnlaunavottun.
Starfaflokkun (sjá atriði 1.-5. hér að neðan) er sett inn á stöðuna í Kjarna. Starfafjölskylda (atriði nr. 6 hér að neðan) er sett á einstaklinginn með því að skrá starfafjölskylduna í grunnlaunaspjald starfsmanns.
Fyrir þá viðskiptavini sem halda utan um persónubundna þætti er hægt að virkja spjaldið Jafnlaunavottun - Persónubundnir þættir til þess að skrá þær upplýsingar á starfsmenn. Þar er hægt að velja yfir- og undirviðmið og skrá stigafjölda fyrir persónubundin viðmið á starfsmann. Ef kveikt er á þessari virkni þá birtast þessar upplýsingar líka í skýrslunni Jafnlaunavottun sem aðgengileg er í hliðarvalmynd Kjarna undir Skýrslur > Jafnlaunavottun. Til þess að virkja þennan möguleika í kerfinu skal senda póst á service@origo.is.
Launarammi - Hægt er að stofna launaramma og tengja á störf og starfafjölskyldur.
Rökstuðningur á frávikum - Á grunnlaunaspjald er hægt að skrá rökstuðning fyrir mögulegum frávikum starfsmanna.
Vöntunarlisti starfslýsinga - Hægt er að tengja starfslýsingu á stöður. Í lista yfir stöður, Kjarni > Stofnskrár > Stöður, er hægt að sjá á fljótlegan hátt hvort starfslýsingu vanti á einhverja stöðu.