Starfsmannavefur 20.6.1
Starfsmannaleit starfsmannavef.
Það kom í ljós að leitin á starfsmannavefnum var hæg ef það vantaði inn ákveðið vefgildi. Þetta hefur nú verið lagað.
Skipurit á starfsmannavef.
Það voru að birtast óvirkar skipulagseiningar í skipuritinu á starfsmannavefnum. Það hefur nú verið lagað.
Birting á númeri auðkenniskorts á starfsmannavef.
Nú er hægt að birta númer auðkenniskorts undir Mínar upplýsingar á starfsmannavef. Ef viðskiptavinir eru að nota auðkenniskort og vilja láta þetta svæði birtast á starfsmannavef þarf að setja inn stillinguna Employee.Web.Show.EmployeeDetail.IdentificationCard á true undir Stillingar > Vefgildi.
Birting á landsnúmeri farsíma á starfsmannavef.
Nú er hægt að birta landsnúmer farsíma á starfsmannavef. Ef leyfa á starfsmönnum að breyta þessu svæði á starfsmannavefnum er stillingin Employee.Web.Edit.EmployeeMaster.PhoneNumberMobile sett á true undir Stillingar > Vefgildi.
Launaupplýsingar - útlitsbreyting á á starfsmannavef.
Gerðar voru útlitsbreytingar á flísunum; Launareikningur, skattkort, lífeyrissjóður, séreignarsjóður, stéttarfélag og starfsmannafélag undir Launaupplýsingar á starfsmannavef.
Fræðslubeiðni og samþykktarferli fyrir námskeiðsskráningar
Bætt hefur verið við virkni þannig að starfsmenn geti sent inn fræðslubeiðni á starfsmannavef með ósk um námskeið eða ráðstefnu auk þess sem samþykktarferlisvirkni hefur verið bætt við fræðsluhlutann.