Ráðningar 25.1.1
Ný útgáfa er komin af ráðningarkerfinu - Ráðningar V2. Við erum að vinna í því að uppfæra þá viðskiptavini sem eiga ráðningarhluta Kjarna. Ef óskað er eftir að fá kynningu á þessari nýju útgáfu skal senda beiðni á service@origo.is
Ráðningar V2 - samþykki vegna persónuverndarlaga
Núna er í boði að vera með samþykki vegna persónuverndarlaga. Er þetta sett inn á Kjarna vefnum undir Stofngögn > Umsóknarvefur - stillingar.
Ráðningar V2 - birta auglýsingu á Facebook
Búið er að bæta við hnappi á auglýsinguna á umsóknarvefnum þannig núna er hægt að deila auglýsingunni á Facebook.
Ráðningar V2 - bæta við leit í spurningabankann og aukaspurningar
Búið er að bæta við leit í spurningabanka og í aukaspurningar við stofnun auglýsingar.
Ráðningar V2 - röðun á spurningum í aukaspurningar
Í skrefinu Aukaspurningar er núna hægt að endurraða spurningunum eftir að þær eru valdar inn.
Ráðningar V2 - skilyrða spurningar af tegundinni Já/Nei
Núna er hægt skilyrða spurningar af tegundinni Já/Nei. Einnig er búið að breyta spurningunni núna þannig valið er annað hvort “Já” eða “Nei”, var áður hak.
Ráðningar V2 - umsóknarvefur - bullets
Bullets fyrir helstu verkefni og ábyrgð, menntunar- og hæfniskröfur og fríðindi var ekki að birtast á umsóknarvefnum. Þetta hefur verið lagað.
Ráðningar V2 - umsóknarvefur - kennitala
Hægt var að skrá kennitölu með bandstriki í umsóknarforminu sem gat verið að valda vandræðum. Þessu hefur verið breytt þannig núna er bara hægt að skrá tölustafi og þeir verða að vera 10.