...
Ef upp kemur að dagsetningar skarast þá er einfaldasta leiðin til að losna við aukafærsluna sú að breyta dagsetningum hennar í dagsetningu langt fram í tímann, t.d. 1.1.1900-31.12.1900, vista breytinguna og eyða færslunni svo.
|
...
Starfsferill starfsmanns í fyrirtækinu | |
---|---|
Hér birtist yfirlit yfir starfsferil starfsmanns innan fyrirtækisins. Eingöngu ein færsla getur verið í gildi á hverjum tíma og þarf nýjasta færslan í spjaldinu alltaf að vera með dagsetninguna 31.12.9999 í Gildir til. Þegar afrituð er ný færsla fyrir þetta spjald kemur sjálfkrafa endadagsetning á fyrri færslu. Endadagsetningin sem kemur á þá færslu er dagurinn á undan upphafsdagsetningu nýjustu færslunnar. Endadagsetningin uppfærist þegar valið er Vista eða Fríska. |
Skipurit | |
---|---|
Í flipanum Skipurit eru upplýsingar um þá stöðu og starf sem tengd er á starfsmann. Til að tengja stöðu á stafsmann er smellt á Velja stöðu og staðan valin úr lista yfir allar stöður í fyrirtækinu. Áður en farið er að tengja stöðu á starfsmann þarf að tryggja að hún sé til í kerfinu. Sjá nánar um það í umfjölluninni um stofnun stöðu og starfs. Einnig er hægt að sjá þá starfslýsingu sem tengd er á stöðuna sem starfsmaðurinn er tengdur á með því að velja Skoða starfslýsingu. |
Umsjónarmenn | |
---|---|
Í flipanum Umsjónarmenn eru upplýsingar um yfirmann, starfsmannafulltrúa, launafulltrúa, tímastjóra, samþykkjanda launa og framkvæmdaaðila frammistöðumats. Þessar upplýsingar erfast af skipulagseiningunni sem starfsmaðurinn er tengdur á í gegnum stöðuna sem hann gegnir innan fyrirtækisins. Hægt er að yfirskrifa þessar upplýsingar hér ef viðkomandi starfsmaður á ekki að fylgja sömu skilgreiningu og aðrir sem eru á sömu stöðu.. |
Kjararannsókn | |
---|---|
Ef búið er að setja upplýsingar um kjararannsókn á það starf sem staða starfsmanns tillheyrir birtast þær hér. Ef fyrirtæki eru ekki að nota störf þá eru þessar upplýsingar handslegnar hér inn. Sömuleiðis ef að viðkomandi starfsmaður á ekki að fylgja sömu skilgreiningu og aðrir í sama starfi er hægt að yfirskrifa kjararannsóknarskráninguna hér. Upplýsingar um atvinnugreinaflokkun er hægt að skrá á fyrirtækið sjálft í stofngögnum fyrirtækis og erfist sú flokkun þá niður á alla starfsmenn fyrirtækis. Upplýsingarnar sem skráðar eru hér eru notaðar í Kjararannsóknarskýrslu sem send er til Hagstofunnar að lokinni útborgun |
Verðhólf | |
---|---|
Flipinn Verðhólf er notaður til að halda utan um upphæðir vegna útseldrar vinnu. Verðhólfin sjálf eru stofnuð í hliðarvali Kjarna undir Stofnskrár > Verðhólf og númer verðhólfs sótt í þrjá punkta og fest á launamann í tengingum innan fyrirtækis. Svæðið er hægt að draga inn í listann Tenging innan fyrirtækis þegar hann er sóttur í hliðarvalmynd undir Mannauður > Tengingar innan fyrirtækis Athugið að Verðhólf hefur enga tengingu við samning starfsmanns eða launataxta hans. |
...