Tímaskráningar

Hægt er að skoða yfirlit stimplana í tvenns konar sýn, annarsvegar Listasýn og hins vegar Töflusýn.

Listasýn

Í Listasýninni birtast stimplanir starfsfólks í svokölluðum flekum, þar sem hægt er að sjá á skýran og fljótlegan máta hversu mörgum tímum starfsmaður hefur skilað og hver áætluð vinnuskylda er fyrir mánuðinn. Einnig er hægt að sjá sundurliðun niður á mismunandi tegundir stimplana, eins og stimplun, veikindi, veikindi barna, orlof, launað leyfi osfrv. Notendur stýra því inni í Kjarna client hvaða tegundir stimplana þeir vilja hafa aðgengilegar á vefnum. Hægt er að smella á hvern og einn starfsmann og fá þannig nánari sundurliðun á stimplunum fyrir valið tímabil, auk þess sem hægt er að stofna, uppfæra og eyða stimplunum ef þörf krefur.

Töflusýn

Í töflusýninni birtast stimplanir undirmanna á einfaldan hátt. Hér er einnig hægt að uppfæra, stofna og eyða færslum ef þörf krefur. Einnig er hægt að breyta mörgum færslum í einni aðgerð, sem er gert með því að haka í þær færslur sem á að breyta, og smella á hnappinn Uppfæra. Hægt er að taka stimplanir út í Excel með því að smella á Flytja í excel.

 

Stofna færslu

Bæði í Töflusýn og Listasýn er hægt að stofna færslu á starfsmann. Það eru tvær birtingamyndir í boði, annars vegar þar sem fjöldi tíma er skráð og hins vegar þar sem settur er inn og út tími og sér kerfið þá um að reikna fjölda tíma. Sjálfkrafa er birtingamyndin fjöldi tíma en ef óskað er eftir að birta inn og út tíma þarf að senda beiðni á service@origo.is.

 

 

Veikindaréttur

Hægt er að skilgreina veikindarétt starfsmanna á launatöflum eftir kjarasamningu, sjá nánar hér: https://kjarni.atlassian.net/wiki/spaces/KJAR/pages/17400121

Þegar það hefur verið gert munu koma upp meldingar við skráningu veikinda ef veikindarétturinn er tæmdur. Ef verið er að skrá veikindi yfir tímabil og starfsmaður á ekki rétt á þeim öllum kemur upp melding “Ekki er hægt að skrá veikindi á alla daga á völdu tímabili þar sem veikindaréttur er fullnýttur”. Einungis skrást þeir tímar sem starfsmaðurinn rétt á. En ef reynt er að skrá veikindi hjá starfsmanni sem hefur fullnýtt veikindaréttinn þá kemur upp meldingin “Ekki er hægt að skrá veikindi þar sem veikindaréttur er fullnýttur”. Engir tímar skrást hjá starfsmanni.

 

Inni/Úti

Einnig hefur verið bætt inn sýn þar sem hægt er að sjá tímaskráningar starfsfólks í litakóðuðu yfirliti, þetta er gagnlegt til að sjá á fljótan hátt hverjir eru í vinnu og hverjir eru fjarverandi. Fyrirtæki geta sjálf stýrt því hvaða tegundir eru aðgengilegar og þær birtast litakóðaðar neðst í valmyndinni, fyrir neðan yfirlit tímaskráninganna.

Hægt er að fara tvær leiðir að því að láta starfsfólk stimpla sig inn/út til vinnu. Annarsvegar er hægt að stilla upp stimpilklukkuforrit í t.d. spjaldtölvu sem er tengd við Kjarna client, og hins vegar getur starfsfólk stimplað sig í gegnum starfsmannavefinn (sjá nánar kaflann (https://kjarni.atlassian.net/wiki/spaces/KJAR/pages/1730445316).