Tímaskráningar
Hægt er að skoða yfirlit stimplana í þrenns konar flipum, Listasýn, Töflusýn eða Tímaútreikningur.
Hægt er að fela flipa með hide stillingu ef ekki er þörf á að bita þá alla. Ráðgjafar Corus geta aðstoðað við það ef send er beiðni á hjalp@corus.is
Listasýn
Í Listasýninni birtast stimplanir starfsfólks í svokölluðum flekum, þar sem hægt er að sjá á skýran og fljótlegan máta hversu mörgum tímum starfsmaður hefur skilað og hver áætluð vinnuskylda er fyrir mánuðinn. Einnig er hægt að sjá sundurliðun niður á mismunandi tegundir stimplana, eins og stimplun, veikindi, veikindi barna, orlof, launað leyfi osfrv. Notendur stýra því inni í Kjarna client hvaða tegundir stimplana þeir vilja hafa aðgengilegar á vefnum. Hægt er að smella á hvern og einn starfsmann og fá þannig nánari sundurliðun á stimplunum fyrir valið tímabil, auk þess sem hægt er að stofna, uppfæra og eyða stimplunum ef þörf krefur.
Ath. ef notandi er með aðgang að gögnum en er ekki yfirmaður eða tímastjóri samkv. skipuriti þá þarf að velja inn Sjá alla í glugganum Sjá sem, eða velja inn yfirmanninn/tímastjórann yfir þeim starfsmönnum sem á að skoða tímaskráningar fyrir.
Töflusýn
Í töflusýninni birtast stimplanir undirmanna á einfaldan hátt. Hér er einnig hægt að uppfæra, stofna og eyða færslum ef þörf krefur. Einnig er hægt að breyta mörgum færslum í einni aðgerð, sem er gert með því að haka í þær færslur sem á að breyta, og smella á hnappinn Uppfæra. Ef breyta á öllum færslum er hægt að setja hak í kassan fyrir fram svæðið Starfsmaður og þá kemur hak í alla í listanum. Hægt er að taka stimplanir út í Excel með því að smella á Flytja í excel.
Tímaútreikningur
Undir Tímaútreikningur birtist tímayfirlit sambærilegt því sem er aðgengilegt undir Flytja tíma. Þar er hægt að stofna, breyta og eyða færslum sem ekki eru með bunkanúmer á sér. Færslum sem hafa verið sendar til launa og erum komnar með bunkanúmer er ekki hægt að breyta og eyða nema þær sé opnaðar undir flipanum töflusýn. Ef bæta þarf við færslum eftir að bunki hefur verið sendur er hægt að stofna þær þarna og þegar farið er í flytja tíma stofnast bunki aðeins með viðbótinni. Í dálkinum Tegund kemur gult i fyrir aftan hverja línu þar sem hægt er að sjá hver stofnaði og breytti færslunni og hvenær það var gert.
Stofna færslu
Í öllum þremur flipunum er hægt að stofna færslu á starfsmann. Það eru tvær birtingamyndir í boði, annars vegar þar sem fjöldi tíma er skráð og hins vegar þar sem settur er inn og út tími og sér kerfið þá um að reikna fjölda tíma. Sjálfkrafa er birtingamyndin fjöldi tíma en ef óskað er eftir að birta inn og út tíma þarf að senda beiðni á hjalp@corus.is.
Hægt er að fá inn fleiri dálka í listann Tímaskráningar > Töflusýn með því að smella á tannhjólið (Stillingar) og haka í þau atriði sem notandi vill að birtist í listanum, eins og t.d. Flutt í laun og Bunki nr.
Veikindaréttur
Hægt er að skilgreina veikindarétt starfsmanna á launatöflum eftir kjarasamningu, sjá nánar hér: Launatöflur
Þegar það hefur verið gert munu koma upp meldingar við skráningu veikinda ef veikindarétturinn er tæmdur. Ef verið er að skrá veikindi yfir tímabil og starfsmaður á ekki rétt á þeim öllum kemur upp melding “Ekki er hægt að skrá veikindi á alla daga á völdu tímabili þar sem veikindaréttur er fullnýttur”. Einungis skrást þeir tímar sem starfsmaðurinn rétt á. En ef reynt er að skrá veikindi hjá starfsmanni sem hefur fullnýtt veikindaréttinn þá kemur upp meldingin “Ekki er hægt að skrá veikindi þar sem veikindaréttur er fullnýttur”. Engir tímar skrást hjá starfsmanni.
Inni/Úti
Undir Inni/Úti er hægt að sjá tímaskráningar starfsfólks í litakóðuðu yfirliti, þetta er gagnlegt til að sjá á fljótan hátt hverjir eru í vinnu og hverjir eru fjarverandi. Viðskiptavinir geta sjálfir stýrt því hvaða tegundir eru aðgengilegar og þær birtast litakóðaðar neðst í valmyndinni, fyrir neðan yfirlit tímaskráninganna. Hægt er að sía Skipulagseiningar, Starfsmenn og Tegundir stimplana.
Hægt er að fara tvær leiðir að því að láta starfsfólk stimpla sig inn/út til vinnu. Annarsvegar er hægt að stilla upp stimpilklukkuforrit í t.d. spjaldtölvu sem er tengd við Kjarna client, og hins vegar getur starfsfólk stimplað sig í gegnum starfsmannavefinn (sjá nánar kaflann (Viðvera starfsmanna).
Samþykktir tímar
Hægt er að bæta við virkni að starfsmaður samþykki tímana sína eftir að tímabili er lokið. Hefur starfsmaðurinn þá x marga daga til að yfirfara tímaskráningar og samþykkja tímana. Yfirmaður/tímastjóri sér síðan undir Viðvera > Tímaskráningar > Listasýn hvaða starfsmenn hafa samþykkt sína tíma og hverjir eiga eftir að samþykkja. ATH. að þessi samþykkt læsir ekki tímabilinu og stoppar ekki að hægt sé að flytja tímana yfir í launin, þ.a.l. ef um ósamþykkt tímabil er að ræða þá getur yfirmaðurinn samt sem áður sent bunkann.