Staða umsóknar, umsækjendaröðun og staða auglýsinga

Ákveðin gildi fylgja kerfinu í upphafi en þeim er hægt að breyta eftir þörfum.
Listar yfir gildin eru aðgengilegir úr hliðarvalmynd:


Til að eiga við þessa lista eru notaðir viðeigandi hnappar í tækjaslánni.


Nýtt fyrir ráðningarvef (ATH. þessi virkni kemur ekki fyrr en í útgáfu 20.1.1):

Undir Röðun þarf að setja inn gildi í Röðun gildi fyrir vefinn (stjörnugjöf=Umsóknarröðun og þumalputtar=Umsækjandaröðun - ATH. sama röðun er á bakvið bæði). Lægsta gildið fær Röðun gildi=0 eða 1.

  • Ef tvennt er með sama númer í Röðun gildi þá raðast þetta eftir Röðun vísir nr. (lægra gildið í Röðun vísir nr. kemur á undan).
  • Má vera gat í númerum í Röðun gildi, birtir bara næsta númer sem er á eftir.
  • Ef ekki á að birta röðun á vefnum má ekkert númer vera í Röðun gildi (verður að vera tómt).



Það er stillingaratriði hvaða staða skráist á nýjan umsækjanda þegar hann sendir inn umsókn í fyrsta sinn. Þessar stillingar eru skilgreindar í kerfisvalmynd undir Stillingar > Gildi
Staða umsóknar: RCApplicationStat.NewApplication
Umsækjendaröðun: RcApplicantRanking.NewApplication

Í dæminu hér að ofan er búið að stilla að nýr umsækjandi fær stöðu umsóknar Ný umsókn og umsækjendaröðun Óskilgreint.
Það er einnig stillingaratriði hvaða staða umsóknar er notuð fyrir höfnun. Stillingin er RCApplicationStat.Rejected í Stillingar > Gildi: