Kiosk fyrir Teríu mötuneytislausn

Kiosk fyrir Teríu mötuneytislausn

Viðskiptavinir útvega sjálfir skjá/tölvu/spjaldtölvu og skanna/kortalesara til að nota fyrir skráningar í mötuneyti og verslun. Ath. að eingöngu er hægt að setja upp Kiosk í Windows umhverfi.

Mælt er með að skanni/kortalesari sé keyptur hjá sama öryggisfyrirtæki og aðgangskortin koma frá.

Ath. Svo starfsmenn geti skannað kortin sín þá þarf kortanúmerið að vera skráð í svæðið Aðgangsskort í launamannanúmersspjöld starfsmanna í Kjarna client.

 

Teríu kiosk er svo sótt á þessa slóð:  https://kjarni-stable.starfsmenn.is/kiosk/downloads

Smellt er á Sækja Kjarna Kiosk>> hnappinn.

image-20250519-131257.png

Í stillingum þarf að setja inn slóð á kerfi viðkomandi viðskiptavinar: https://viðskiptavinur-api.starfsmenn.is (í stað viðskiptavinur er settur kerfiskóði viðskiptavinar), ásamt notanda og lykilorði. Einnig þarf að velja við hvaða mötuneyti/verslun á að tengja viðkomandi tölvu við.

Ef viðskiptavinir vilja láta setja upp Teríu notanda sem gefur eingöngu aðgang að Teríu þá þarf að senda inn beiðni þess efnis á service@origo.is

Starfsmenn skrá sig í mötuneyti/verslun með því að skanna kortið sitt. Einnig er hægt að skrá sig inn með því að stimpla inn kennitölu og/eða kortanúmer ef kortið gleymist.

Sýnishorn af sjónarhorni starfsmanns í mötuneyti:

Gleymdi korti:

Ef starfsmaður gleymdi aðgangskortinu sínu er hægt að skrá sig í mat með kennitölu. Það er hægt að setja inn stillingu þannig skráning sé í gegnum starfsmannanúmer í stað kennitölu.

Sýnishorn af sjónarhorni starfsmanns í verslun:

Líkt og með skráningu í mat getur starfsmaðurinn valið Gleymdi korti og skráð sig fyrir vörum með kennitölu. Það er hægt að setja inn stillingu þannig skráning sé í gegnum starfsmannanúmer í stað kennitölu.