Launaáætlun á vef
Hægt er að gefa stjórnendum aðgang að launaáætlun á vef. Kveikja þarf sérstaklega á þessum kerfishluta svo hann birtist á Kjarnavef.
Launaáætlunin sjálf hefur þá áður verið stofnuð í Kjarna client af launafulltrúa og þekkt gildi skráð í hana.
Aðgangi stjórnenda að launaáætlun er stýrt frá skipuriti og með stillingum á hlutverki. Sjá nánar um aðgangsstýringar hér: Notendur og aðgangsmál
Stillingar:Eins og áður sagði er launaáætlun stofnuð í Kjarna client og þekkt gildi skráð í hana með þeim aðferðum sem til eru . Sjá nánar hér: Áætlun Til þess að áætlun birtist stjórnanda á vef þarf hlutverkið sem hann er með að gefa aðgang að launaáætlun. Hlutverkið “Yfirmaður með laun” sem margir stjórnendur eru með kemur ekki sjálfgefið með þeim aðgangi. Hægt er að fá aðstoð með stillingar hjá ráðgjöfum Origo með því að senda póst á service@origo.is. Einnig þarf að skrá í Stillingar - Gildi, vísisnúmer þeirrar áætlunar sem er til vinnslu. Ef verið er að áætla fyrir fleiri en eitt fyrirtæki er sett inn skipun fyrir hvert fyrirtæki með númeri fyrirtækis og vísisnúmeri áætlunar. Breytingar sem launafulltrúi gerir á áætlun meðan á vinnslu hennar stendur verða sýnilegar stjórnendum á vef um leið og þær hafa verið vistaðar í client. | |
| Vefur:Stjórnandi fer með músina yfir táknið Í yfirlitsmynd áætlunar birtist heildarfjárhæð áætlunar fyrirtækis útfrá aðgangi þess sem er innskráður. Smellt er á þá mynd til að komast inn í færslur þeirra starfsmanna sem stjórnandi hefur aðgang að. |
| Sjálfvalið opnast áætlun með starfsmenn í stafrófsröð. Hægt er að breyta þeirri röðun með því að draga inn í svæðið “Draga dálk hingað til að flokka eftir honum” þann dálk sem viðkomandi vill flokka eftir. Algengast er að flokka eftir kostnaðarstöð nr og nafn. Hægt er að fara í Velja dálka til að sjá alla dálkana sem í boði eru. Einnig er hægt að leita í áætluninni eftir nafni, launamannanúmeri, skipulagseiningu, og kostnaðarstöð. Einnig er hægt að sía niðurstöður niður á valda launaliði með því að velja þá í svæðinu við hliðina á Leita. Þá birtast einungis fjárhæðir fyrir þá launaliði sem valdir eru. |
| Hér er flokkað eftir kostnaðarstöð nr og nafn og koma þá fram þær kostnaðarstöðvar sem sá sem innskráður er hefur aðgang að. Fyrir aftan hverja kostnaðarstöð kemur heildarfjárhæð launa og launatengdragjalda ásamt fjölda stöðugilda. |
| Smellt er á örina fyrir framan valinn hóp til að komast inn í færslur launþega og þar er hægt að bæta við línum, eyða eða breyta. Fyrir aftan nafn launþega koma upplýsingar úr þeim dálkum sem valdir hafa verið til birtingar Hægt er með vefgildi að skipta út birtingu Stöðu fyrir Starf. Þeir sem vilja frekar birta Starfið geta sent beiðni þess efnis á service@origo.is
|
| Við valda línu í áætlun er hægt að sjá nánari upplýsingar um innihald hennar með því að smella á nánar. Eftirtaldar upplýsingar koma þar fram
Ef verið er að vinna með grunnlaunaflokka og álag þá koma þær upplýsingar einnig fram undir nánar. |
| Likt og í skráningarmynd áætlunar í client er hægt að framkvæma fjöldabreytingu fyrir launalið í áætlun á Kjarna vef. Sú aðgerð er aðgengileg í Nánar svæðinu og heitir “Fjöldabreyta” |
Þegar smellt er á hnappinn kemur upp valskjár þar sem eftirfarandi gildum í línunni er hægt að breyta:
| |
| Ef þörf er á að breyta gildi á skráðri færslu er hægt að gera breytingu á fyrsta mánuði og smella svo á Ctrl-M til að afrita það gildi út hina mánuðina. Þegar þetta er gert verður línan græn og hægt er að smella á Vista og reikna eða bara vista til að geyma breytinguna. |
| Til að bæta við færslum á starfsmenn er smellt á Nýjar færslur og upp kemur þessi valskjár. Í svæðini Velja launalið er hægt að velja um skráningu launaliða sem skilgreindir hafa verið til notkunar í Launaáætlun. Hægt er í svæðinu að leita bæði eftir númerum og heitum launaliða. Sett er inn eining eða upphæð og hakað í þá mánuði sem færsla á að stofnast í. Ef þörf er á að skrá launalið á aðra kostnaðarstöð en starfsmaður er á þá er það hægt í svæðini Kostnaðarstöð. Þar er hægt að leita að kostnaðarstöðvum eftir bæði númerum og heitum. ATH. ef færsla er skrá á aðra kostnaðarstöð en starfsmaður er á þá birtist hún í annari línu. |
| Eftir að færslum hefur verið bætt við, þeim breytt eða eytt þá verður reikna hnappurinn rauður og í hægra horni kemur upp melding um að það þurfi að endurreikna. Ef verið er að breyta færslum hjá fleirri en einum launamanni er einnig hægt að smella á “Reikna” uppi í hægra horni . Eftir að stjórnandi hefur gert breytingar í áætlun og smellt á “Reikna” verður breytingin sýnileg launafultrúa í Kjarna client. |
| SkýrslurÍ upphafsvalmynd áætlunar á vef og yfirlitsmynd kostnaðarstöðva eru aðgengilegar þrjár skýrslur fyrir birtar áætlanir. |
| Þegar smellt er á hnappinn “Skýrslur” fyrir valda áætlun þá kemur upp val um skýrsluna áætlun eða Áætlun/raun samanburður |
| Skýrslan Áætlun birtir sjálfgefið fjárhæðir niður á kostnaðarstöð, launaliður, eining. Hægt er að breyta valinu og smella á fríska til að fá aðra birtingu. Til þess að komast aftur í sjálfgefið niðurbrot er hægt að smella á þrjá punkta við hliðina á Fríska hnappnum. Þeir valmöguleikar sem hægt er að velja eru: Bókhaldslykill, Kostnaðarstöð, Launaliður, Launamaður og Skipulagseining. Einnig er hægt að velja um að birta Upphæð, einingar, tíma eða stöðugildi. Þegar kostnaðrstöð er sprengd út til að sjá niðurstöður fyrir bókhaldslykil birtast þær niðurstöður í öðrum lit. Rétt númeraröð er birt með örina upp (Sjá mynd - Kostnaðarstöð nr) og öfuf röðun er birt með örina niður (Sjá mynd - Bókhaldslykill) |
Hægt er að taka skýrsluna út í excel með því að smella á excel táknið í hægra horni. Þá kemur upp valskjár þar sem hægt er að breyta um fyrirsögn á skjali, setja inn lýsingu og velja í hvernig litum það opnast. | |
Excel skjalið opnast útsprengt miðað við þau atriði sem valin eru. I þessu tilfelli Kostnaðarstöð og bókhaldslykill: | |
Skýrslan Áætlun/Raun samanburður ber saman raun launakostnað við valda áætlun. Í svæðið launaögn ár þarf að velja sama ár og valinn áætlun er að vinna með til að fá réttan samanburð. Ef verið er að birta áætlun fyrir árið 2023 þá er valið að birta launagögn fyrir sama ár. Þessi skýrsla virkar með sama hætti og skýrslan hér til hliðar. Ef vali er breytt þá þarf alltaf að smella á fríska til að fá aðra birtingu | |
Skýrslan Dálkalistar bíður uppá marga möguleika í skýrslugerð, bæði fyrir áætun og laun. Það þarf að byrja á að stofna dálkalista í Kjarna client svo að hægt sé að vinna með þessa skýrslu. Dæmi um dálkalista fyrir skýrsluna eru:
Ráðgjafar Origo geta aðstoðað við að stofna og stilla dálkalista ef send er beiðni þess efnis á service@origo.is
Þegar smellt er á framkvæma birtist fyrst valskjár þar sem velja þarf dálkalista, skilyrði og niðurbrot áður en smellt er á fríska til að fá inn gögnin. Þau niðurbrot sem eru í boði eru: Kostnaðarstöð, Bókhaldslykill, Launaliður, Launamaður, Skipulagseining, Mánuður, Starfsheiti, Ár, Útborgun, Fyrirtæki, Vinnuform, Samningur og Launaflokkur. Valskjárinn opnast alltaf með þeim skilyrðum sem síðast voru valin. Niðurbrotin sem hér er hægt að velja geta verið allt að fjögur. Einnig er hægt að vera með fyrirfram skilgreint niðurbrot í dálkalistum áætlunar. Þau eru skilgreind á dálkalistanum sjálfum undir skýrslur í client. Ráðgjafar Origo geta aðstoðað við það. | |
Hér til hliðar er dæmi um skýrslu sem birtir samanburð á áætlun og launum tveggja ára fyrir fjóra mánuði. Niðurbrotin í valinu eru Mánuður, Kostnaðarstöð, Launamaður og Launaliður og hægt er að bora sig niður með því að smella á plúsana fyririr framan völdu skilyrðin. | |
Eins og með hinar skýrslurnar þá er einnig hægt að taka dálkalistana út í excel. |