Launabreytingar á vef

Launabreytingar á Vef

Undir Laun á Kjarna vef er aðgerðin Launabreytingar aðgengileg.

Virknin er þannig að launafjárhæðir eru sóttar fyrir skilgreinda launaliði í spjaldið Fastir launaliðir hjá starfsmönnum.

Ef óskað er eftir þessari virkni geta Ráðgjafar Origo aðstoðað við það og hægt er að senda beiðni á service@origo.is til að virkja hana.

Þegar smellt er á launabreytingar opnast listi yfir starfsmenn sem viðkomandi notandi hefur aðgang að.

Efst má sjá fjölda starfsmanna ásamt meðallaunum og miðgildi starfsmannahópsins.

Starfafjölskyldan er starfið sem tengt er á stöðu starfsmanns og launarammin er sóttur á starfið ef hann er skráður þar. Ef viðskiptavinir eru að nota Jafnlaunavottun - Starfafjölskyldur sem settar eru inn á grunnlaunaspjöld starfsmanna þá birtast þær starfafjölskyldur í listanum en ekki þær sem tengdar eru á stöðuna, sjá nánar hér.

Laun starfsmanns sýna mánaðarlaun og þá launaliði sem tilgreindir eru í stillingum sem ráðgjafar Origo aðstoða við að setja inn.

Undir stöðu launa má sjá hvort starfsmaður er yfir, undir eða innan launaramma.

Stofnun Launabreytinga

Til þess að stofna launabreytingu er smellt á örina fyrir framan nafn þess starfsmanns sem breyta á launum fyrir:

Launafjárhæðir sem þarna birtast eru miðað við 100% laun.

Miðgildi og meðallaun m.v. alla á þessari sömu starfafjölskyldu, ekki bara þá sem notandinn hefur aðgang að. Þetta gefur notandanum meiri upplýsingar en bara takmarkað við þann hóp sem hann hefur aðgang að. 

Myndin til hægri sýnir launaþróun starfsmanns sl. ára miðað við þá launaliði sem eru í stillingu. Fjárhæð launaliðana er lögð saman og deilt með fjölda greiddra stöðugilda á árinu til að finna fjárhæðina sem grafið birtir.

Smellt er á að breyta launum og þá kemur þessi mynd upp:

 

  • Skráð er krónutala hækkunar og þá reiknast út hver hækkunin er í prósentum og hver mánaðarlaunin verða eftir breytingu

  • Skráð er prósentutala hækkunar og þá reikanst út hver hækkunin er í krónum og hver mánaðarlaunin verða eftir breytingu

  • Þar fyrir neðan koma áætluð heildarlaun eftir breytingu útfrá stillingum og staða starfsmanns innan launaramma

  • Rökstuðingur er valinn úr fellivali, hægt er að velja fleiri en eitt atriði (Listinn stofnaður undir Stofngögn launa)

  • Mat á frammistöðu valið úr fellivali (Listinn stofnaður undir Stofngögn launa)

  • Uppafsdagur launabreytinga skráður

  • Svæði fyrir athugasemdir

  • Smellt á Áfram og færsla stofnast undir flipanum launabreytingar

Launabreytingar - listi

Þarna birtast allar launabreytingar sem stofnaðar hafa verið á völdu tímabili. Hægt er að taka listann út í excel með því að smella á táknið í hægra horni.

Hægt að smella á nafn og upp kemur sami gluggi og þegar launabreytingin var stofnuð.

 

Hægt er að taka afstöðu til launabreytingar bæði í listanum og þegar smellt er á færsluna með því að velja gildi í Staða launabreytingar.

Ef stjórnandi má samþykkja eða hafna launabreytingu þarf að bæta þeim möguleika inn í hlutverk viðkomandi. Ráðgjafar Origo aðstoða við það.

Launa- og mannauðsdeildir þurfa að fylgjast með breytingum þarna og handgera breytingar á grunnlaunasjöldum þeirra starfsmanna sem fá breytingu á launum.

 

Tölvupóstar og rafrænar undirritanir við launabreytingar

Hver og ein af neðangreindum stillingum þarf að stilla sérstaklega þannig senda þarf tölvupóst á service@origo.is ef óskað er eftir þeim

Tölvupóstur þegar launabreyting er stofnuð

Ef viðskiptavinir vilja að það sendist tölvupóstur á einhverja ákveðna aðila þegar launabreytingafærslur eru stofnaðar er hægt að setja þau netföng inn í stillingar.

Póstinn er hægt að senda á fleirri en einn aðila. Það er hægt að fara beint inn í þessa tilteknu launabreytingu með því að velja Skoða / View hnappinn í tölvupóstinum.

Tölvupóstur þegar launabreytingu er hafnað

Hægt er að láta senda tölvupóst á starfsmenn ef beiðn um launabreytingu er hafnað. Þegar valið er “Hafnað” kemur upp pop-up gluggi með texta fyrir tölvupóst.

Rafræn undirritun

Einnig er hægt að senda samþykkta launabreytingu í rafræna undirritun.

Viðskiptavinir geta falið flipann og slökkt á virkninni ef þess óskast.

Þegar búið er að kveikja á rafrænni undirritun er virknin þannig þegar smellt er á “Samþykkt” þá sprettur upp gluggi sem spyr hvort stofna eigi skjal til rafrænnar undirritunar.

Þegar smellt er á “já” kemur upp form fyrir bréfið sem fylla þarf út í með sama hætti og fyrir önnur bréf sem send eru til rafrænnar undirritunar.

Þegar formið er útfyllt er smellt á “Senda skjal”

Þegar allir aðilar hafa undirritað sendist tölvupóstur á tiltekið netfang líkt og með aðrar rafrænar undirritanir.