Námskeiðsmat
Í Kjarna er hægt að búa til námskeiðsmat undir fræðsluhluta kerfisins sem þátttakendur geta svarað á starfsmannavef að námskeiði loknu.
Námskeiðsmatið byggir á spurningum, spurningasniðmáti og frammistöðumati.
Námskeiðsmatið byggir á spurningum, spurningasniðmáti og námskeiðsmati. Í upphafi er byrjað á því að stofna spurningar sem á að nota í námskeiðsmatinu. |
Spurningar | |
---|---|
Spurning er fyrirsögnin sem birtist fyrir spurninguna í matinu Lýsing er textinn sem kemur þegar farið er með bendilinn yfir svæðið.
|
Spurningasniðmát | |
---|---|
Hægt er að vera með ýmis spurningasniðmát í Kjarna og nýta þau sem grunn að námskeiðsmati. Ef gerðar eru breytingar á sniðmáti þá hafa þær breytingar ekki áhrif á eldri námskeiðsmöt sem byggja á þessu tiltekna sniðmáti. Tvísmellt er á sniðmát til að breyta því auk þess sem hægt er að nota viðeigandi hnappa til að stofna nýtt sniðmát, breyta og/eða eyða. Inn í sniðmát er hægt að bæta:
Það er hægt að velja fleiri en eina spurningu í einu með því að halda ctrl hnappinum inni á meðan þær eru valdar. Einnig er hægt að eyða einhverju af ofantöldu úr sniðmáti. Hægt er að breyta röð á spurningum með því að draga þær til í spurningatrénu. Einnig er hægt að færa spurningar á milli spurningahópa á sama hátt. Hægt er að skilgreina hvort spurningahópur eða spurning sé skilyrt og hvort megi svara oftar en einu sinni. |
Námskeiðsmat | |
---|---|
Í námskeiðsmatið er síðan hægt að draga inn einstaka spurningar eða spurningasniðmát sem hafa verið stofnuð. |
Námskeiðsmat á námskeið | |
---|---|
Námskeiðsmatið er tengt á viðkomandi námskeið. Þegar námskeiði hefur verið lokið þá birtist námskeiðsmatið þátttakendum á starfsmannavefnum. Þátttakendur svara matinu á starfsmannavef og svörin vistast niður í Kjarna. Til að námskeiðmatið birtist á starfsmannavefnum þarf að birta flísina fyrir Námskeiðmat. Sjá stillingar fyrir starfsmannavef hér. |
Svör námskeiðsmats | |
---|---|
Skýrslan Svör námskeiðsmats er aðgengileg í hliðarvalmynd Kjarna undir Kjarni > Fræðsla. | |
Byrjað er á því að velja fyrir hvaða námskeið skoða eigi námskeiðsmat og smellt á Framkvæma . | |
Í skýrslunni sem keyrist upp er í aftasta dálki skýrslunnar útreiknað meðaltal fyrir hvern þann sem svaraði matinu. Það er svo hægt að bæta inn meðaltali fyrir hverja spurningu fyrir sig og fyrir heildarniðurstöðuna með því að hægri smella neðst í skýrsluna og velja Average. |