Dagpeningabeiðnir

Viðskiptavinir sem nýta sér dagpeningakerfishluta Kjarna geta birt flís fyrir dagpeningabeiðni á starfsmannavefnum.

Skjámynd 2024-01-03 125653.png

 

Skjámynd 2024-01-03 130000.png

Sjálfgefið kemur kerfið með tegundina Samtals valda. Hægt er með vefgildi að birta sjálfvalið aðra tegund. Einnig er hægt að setja inn vefgildi ef festa á tegund svo eingöngu sé hægt að velja eina. Ráðgjafar Origo aðstoða við þær stillingar og best er að senda inn beiðni á service@origo.is

 

Starfsmenn fylla út beiðnina og senda inn með því að smella á Stofna. Yfirmaður fær tölvupóst um að borist hafi beiðni um dagpeninga og samþykkir eða hafnar beiðninni á Kjarnavefnum.

Ef yfirmaður samþykkir dagpeningabeiðni myndast færsla í Dagpeningar > Færslur.

 

 

 

Þeir viðskiptavinir sem vilja nýta sér dagpeningabeiðnir á starfsmannavef eru beðnir um að senda inn beiðni þess efnis á service@origo.is