Að skipta um helluvalmynd
Helluvalmyndir eru vistaðar undir Möppur. Valmyndirnar geta verið vistaðar í mismunandi möppum en í einhverjum kerfum hafa notendur stofnað möppu með nafninu "Helluvalmyndir/Upphafsvalmyndir" þar sem haldið er utan um allar valmyndir sem stofnaðar hafa verið í kerfinu.
Varðveisla helluvalmynda | |
---|---|
Helluvalmyndir eru vistaðar undir Möppur. Valmyndirnar geta verið vistaðar í mismunandi möppum en í einhverjum kerfum hafa notendur stofnað möppu með nafninu "Helluvalmyndir/Upphafsvalmyndir" þar sem haldið er utan um allar valmyndir sem stofnaðar hafa verið í kerfinu. |
Notandi skiptir sjálfur um valmynd | |
---|---|
Ef að notandi hefur aðgang að möppum og valmyndum þar undir er einfaldasta leiðin fyrir viðkomandi að finna viðeigandi helluvalmynd og hægri smella á hana og velja þar "Setja sem valmynd". Næst þegar notandinn opnar kerfið þá opnast það á valdri valmynd. |
Valmynd sett á ákveðinn notanda eða notendur með ákveðið hlutverk | |
---|---|
Til að setja ákveðna valmynd á notanda sem hefur ekki aðgang að möppum, eða til að setja valmynd á hlutverk eða hópa er sett inn stilling undir Stillingar –> Gildi. Stillingin heitir Xap.Startup. Notandi: Hér er sett inn notandanafn viðkomandi starfsmanns. Hlutverk nr: Með því að velja (...) opnast listi yfir hlutverk í kerfinu. Þar er hægt að velja inn ákveðið hlutverk (Dæmi: Mannauður / Laun / Ráðningar o.s.frv) Hópur nr: Með því að velja (...) opnast listi yfir hópa í kerfinu. Þar er hægt að velja inn ákveðinn hóp. Í Gildi er sett númer á valmyndinni sem á að birtast þegar notandinn opnar kerfið. Númerið er hægt að finna með því að hægri smella á valmyndina undir Möppur og velja Stilla. Undir Númer er það númer sem á að setja í Gildi í stillingunni. |