Lífeyrissjóður

Upplýsingar um hvaða lífeyrissjóð starfsmaður greiðir í og hversu mikið eru skráðar í þetta spjald. Áður en hægt er að skrá inn í spjaldið þarf að vera búið að stofna lífeyrissjóðina í kerfinu.


Dæmi:

Yfirskrifa reiknireglu og hlutföll

Starfsmaður á ekki að greiða iðgjald í lífeyrissjóð heldur skal aðeins reikna mótframlag og skal það eingöngu reiknað af dagvinnulaunum. Valið „Yfirskrifa reiknireglu" og reiknitegund nr. 1 Dagvinna valin úr fellivali. Mótframlags prósenta skráð í reitinn Hlutfall fyrirtæki. Þegar valið er að nota "Yfirskrifa reiknireglu" þá er einnig verið að yfirskrifa hlutföll.  

Yfirskrifa hlutföll

Starfsmaður greiðir ekki sama hlutfall (prósentu) og skilgreint er á lífeyrissjóði, eða mótframlag reiknast ekki það sama (%) og skilgreint er á lífeyrissjóði, en allur reikningur á samt að fylgja sjóði, þá er valin reiknireglan "Yfirskrifa hlutföll"
Reiknitegund er áfram óaðgengileg (grálituð) og sama er með hak fyrir orlof og endurmenntun, það fylgir reglum lífeyrissjóðsins.

 

Ef starfsmaður greiðir í tvo sameignar lífeyrissjóði, þá þarf að yfirskrifa reiknireglu fyrir annan sjóðinn og sleppa haki í Endurhæfingarsjóð

 

Gildistími

Til þess að færsla í spjaldi launamanns reiknist í útborguninni þarf hún að vera í gildi einhverntíman í bókunarmánuði útborgunar.  Bókunarmánuður útborgunar ræður því hvaða færsla í spjaldi er notuð.  Ef verið er að leiðrétta laun afturvirkt þá reiknast í þann sjóð sem starfsmaðurinn er í þegar leiðréttingin er greidd færsludagsetningar hafa þá ekki áhrif.

Ef hins vegar á að reikna í sömu sjóði og voru í gildi á tímabilinu sem verið er að leiðrétta er hægt er að setja inn stillingu í Stillingar - Gildi   Xap.DontUseBookDate4Cards og true í gildi 


Ef starfsmaður sem náð hefur 70 ára aldri hefur heimild til að greiða áfram í sinn almenna lífeyrissjóð er hægt að setja hak í svæðið “Greiða í almennan sjóð eftir 70 ára aldur”