Aldurshækkanir - bakfæra aðgerð
Ef bakfæra þarf aldurshækkun er hægt að bakka aðgerð. Þessi aðgerð eyðir nýjum spjöldum og setur fyrri lokadagsetningu á eldri spjöld. | |
| Farið er í Aldurshækkanir fyrir utan Launahring. Þar er hægt að fara í Aldursbunka til að finna númer bunkans sem á að bakfæra. |
Einnig er hægt að fá upplýsingar um bunkanúmer með því að fara í Orlofs- eða grunnlaunaspjald starfsmanns sem á að leiðrétta, og ýta þar á Skoða síðustu aldurshækkun. | |
Í þessu dæmi er hægt að sjá að bunkanúmerið sem við erum að leita að er nr.136 | |
Til að framkvæma aðgerðina er farið í Skoða í Aldurshækkun og ýtt á aðgerðarhjólið. Aðgerðin Bakka grunnlaunahækkun eða orlofshækkun valin eftir því sem við á. | |
Setja þarf inn númer bunkans og haka í Geyma niðurstöðu og ýta á Framkvæma. | |
Upp kemur aðgerðargluggi. | |
Aðgerðin hefur eytt nýja grunnlaunaspjaldinu og sett eldra spjald með fyrri lokadagsetningu. |