Persónuafsláttur yfir áramót

Þessi aðgerð opnar valskjá sem bíður uppá val um að annað hvort séu persónuafsláttarspjöld flutt yfir áramótin eða að ónýttur persónuafsláttur sé núllstilltur.

Athugið að aðeins á að velja aðra hvora leiðina.

Persónuafsláttur yfir áramót

 

Persónuafsláttur yfir áramót

 

image-20240809-161433.png

Þessi aðgerð býr til ný persónuafsláttarspjöld og lokar eldri. Mælt er með þessari aðgerð fyrir starfsemi þar sem bæði eru greidd mánaðarlaun fyrirfram og eftirá um áramót, þar sem persónuafsláttarspjöldin vinna á dagsetningum.

Ath. - hægt er að keyra þessa aðgerð án þess að haka við “Geyma niðurstöðu”. Það er gert til að skoða áhrifin. Um leið og hakað er í “Geyma niðurstöðu”, þá verða til ný persónuafsláttarspjöld með nýjum gildistíma (1,janúar xxxx ) og lokadagsetning kemur á eldri spjöldin (31.12.xxxx)

image-20240809-161438.png

Skilaboðagluggi kemur upp þar sem farið er yfir það sem verður gert í aðgerðinni. Veljið “Já” til að klára aðgerðina.

Núllstilla persónuafslátt

 

Þessi aðgerð er heppilegri þar sem eingöngu er unnið  með eftirágreidda starfsmenn. Þessa aðgerð er hægt að keyra eftir að búið er að loka síðasta ári og áður en laun eru greidd á nýju ári. Þessa aðgerð þarf því ekki að keyra fyrr en undir lok janúar mánaðar.

Ath. - hægt er að keyra þessa aðgerð án þess að haka við Geyma niðurstöðu. Það er gert til að skoða áhrifin. Um leið og hakað er í Geyma niðurstöðu, núllstillist eldri ónýttur persónuafsláttur og dagsetning í Síðast notað verður síðasta dagsetning fyrra árs.

Skilaboðagluggi kemur upp þar sem farið er yfir það sem verður gert í aðgerðinni. Veljið “Já” til að klára aðgerðina.