Samþykkjandi launa

Kjarni skilgreinir alla þá sem eru yfirmenn á skipulagseiningu sem samþykkjendur launa. Hægt er að yfirskrifa samþykkjanda fyrir heila skipulagseingu eða einstaka starfsmenn. 

Samþykkjanda á skipulagseiningu er breytt undir stillingum hverrar skipulagseiningar í Kjarni → Stofnskrár → Skipulagseiningar



Dæmi 1:  Í dæminu hér fyrir neðan sést að í skipulagseiningunni Bakvinnsla er yfirstaðan Deildarstjóri. Herdís Anna Jónsdóttir er í þeirri stöðu og kemur hún því sem yfirmaður þeirrar skipulagseiningar. Kerfið setur Herdísi sjálfkrafa sem samþykkjanda launa. 

ATH: Skipulagseiningin tilheyrir Einstaklingssviði. Framkvæmdastjóri einstaklingssviðs sér einnig launafærslur fyrir Bakvinnslu og getur þ.a.l. samþykkt launin í fjarveru Herdísar. 


Dæmi 2: Í dæminu hér fyrir neðan sést að í skipulagseiningunni Einstaklingssvið er yfirstaðan Framkvæmdastjóri. Margrét Ólafsdóttir er framkvæmdastjóri einstaklingssviðs. Hinsvegar er búið að yfirskrifa samþykkjanda launa á deildinni þannig að Brynjar Már Brynjólfsson samþykkir laun í stað Margrétar. Ef Brynjar er ekki stjórnandi á réttum stað í skipuriti til að sjá starfsmenn Einstaklingssviðs, þá þarf að útbúa sérstakt hlutverk fyrir Brynjar. Skrá þarf í þetta hlutverk hvaða aðgang Brynjar á að hafa umfram stöðu sína í skipuriti.

Dæmi 3: Ef breyta á samþykkjanda fyrir einstaka starfsmenn, t.d. ef að forstjóri á að samþykkja laun framkvæmdastjóra eða ef að framkvæmdastjóri á að samþykkja laun forstöðumanna er það gert í spjaldinu Tenging innan fyrirtækis hjá viðkomandi starfsmanni. 


Áður en samþykktarferlið er stofnað er nauðsynlegt að fara yfir starfsmannalista og tryggja að réttur samþykkjandi sé skráður á hvern og einn starfsmann. Í listanum tenging innan fyrirtækis er hægt að draga inn allt sem þarf til að búa til slíkan lista.