Tengja skýrslu við samþykktarferli

Þegar útbúin er skýrsla fyrir launasamþykktarferlið þarf að tryggja að skipunin @PayEmployeeApproveEmployeeDetailID sé inn í stillingum skýrslunar svo hún opnist með völdum launamanni. 

Til að tengja skýrsluna við hnappinn í samþykktarferlinu þarf að setja inn eftirfarandi í Stillingar → Gildi 

PayEmployeeApprove.Report

Í gildi er síðan sett númer skýrslunar. 

Ef skýrslan á að innihalda fleiri útborganir til samanburðar, þá bætist eitt gildi til viðbótar í Stillingar → Gildi 

#PayID_Samthykkt

Í gildi eru síðan skráð númer útborgunarvísis þeirra útborgana sem sækja skal í skýrsluna.